Stöndum vörð um skólastarf – sameiginleg viljayfirlýsing

Fréttir|20. ágúst 2020

Reynslan frá liðnu vori er dýrmæt og er í viljayfirlýsingunni markmið allra að bregðast hratt við þróun mála.

Umhyggja, sveigjanleiki og þrautseigja verða leiðarljós samvinnu Kennarasambands Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Grunns, félags fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, í skólastarfi á tímum COVID-19. Undirritun þess efnis fór fram í Hörpu og voru allir aðilar sammála um mikilvægi þess að skólastarf fari fram með eins hefðbundnum hætti og frekast er unnt.

„Á síðasta skólaári var gripið til markvissra aðgerða svo skólastarf raskaðist sem allra minnst. Samstaða skólafólks og lausnamiðuð viðhorf einkenndu þær aðgerðir og skiluðu þær góðum árangri, sem er hvatning inn í nýtt skólaár,“ segir í yfirlýsingunni.

Reynslan frá liðnu vori er dýrmæt og er í viljayfirlýsingunni markmið allra að bregðast hratt við þróun mála, nýjum upplýsingum og aðstæðum hverju sinni. Hugsað verður í lausnum og tryggt að nemendur hafi viðeigandi aðstöðu og stuðning til að stunda nám sitt og starfsskilyrði í skólum séu eins og best verður á kosið hverju sinni.

Í yfirlýsingunni kemur einnig fram að mikilvægt er að samfélagið allt leggist á sveif með skólum landsins og standi vörð um skólastarf.

 

Sameiginleg viljayfirlýsing um leiðarljós í skólastarfi á tímum COVID-19