Stöndum vörð um áunnin réttindi

Fréttir|25. maí 2016

Nýverið sat ég ráðstefnu Alþjóða kennarasamtakanna (EI) og OECD. Á ráðstefnunni var m.a. rætt um skóla­þróun í OECD-ríkjunum og hvernig við getum best náð árangri í skólastarfinu. Eitt af því sem mikið er í umræðu og skoðun þessara aðila er þróun einkavæðingar og útvistunar verkefna úr skólakerfinu. Alþjóða kennarasamtökin hafa af þessu miklar áhyggjur og hafa kortlagt þessa þróun. Við þá skoðun ­hefur verið sýnt fram á að best sé að hafa skólastarfið í höndum hins opinbera því það tryggi best gæði og veiti þegnunum jafnræði. Réttur allra til náms er mikilvæg grunnmannréttindi og þau á að tryggja. Það gerum við best með því að opinberir aðilar annist og reki skólakerfi. Þetta er skoðun Alþjóðasamtaka kennara EI og KÍ.

Þetta er rétt að hafa í huga þegar íslensk stjórnvöld auka sífellt áherslu á greiðsluþátttöku þegnanna, þar á meðal í menntakerfinu. Við félagsmenn KÍ þurfum að standa vörð um þetta og standa saman í að verja menntakerfið í landinu sem mælingar OECD sýna að sé eitt það réttlátasta og besta sem þekkist. Styrkleiki þess hefur verið sá að lítill munur er á gæðum skóla á landsvísu, enda eiga öll börn og ungmenni rétt til menntunar án þess að þurfa að greiða fyrir hana á grunnskólastigi. En við þurfum að gæta okkar og passa að svo verði áfram. Til viðbótar þyrfti að gera leikskólastigið gjaldfrjálst. Við þurfum einnig að þrýsta á að fjárveitingar til menntamála verði stórauknar, en skólakerfið hefur verið beitt miklu aðhaldi frá því fyrir hrun 2008. Nú er kominn tími til að bæta í og gera góðan skóla enn betri. Það sárvantar fjármagn í rekstur skólakerfisins, einstakra skóla og almennt til að endurnýja búnað sem ekki hefur mátt gera frá hruni.

SALEK
Um miðjan apríl var haldinn ársfundur KÍ. Þar var lögð fram skýrsla um starfsemina fyrir árið 2015. Árið var starfsamt og töluvert álag á forystu og starfsmönnum. Reksturinn er í jafnvægi og örlítill afgangur varð af honum, sem er gott. Á ársfundinum var fjallað sérstaklega um samstarf með aðilum vinnumarkaðar í nefnd sem starfar undir heitinu SALEK (Samstarfsnefnd um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga). Nefndin var stofnuð í júní 2013, en markmið með starfi hennar er að bæta þekkingu og vinnubrögð við undirbúning kjarasamninga og auka skilvirkni við gerð þeirra.
SALEK hópurinn vinnur áfram, undir forystu ríkissáttasemjara, að langtímatakmarkinu sem er að skapa nýtt vinnumarkaðsmódel sem einfalda á kjarasamningsgerðina. Í gangi er úttekt og kortlagning á íslenska vinnumarkaðsmódelinu eins og það er í dag. Til verksins var ráðinn Norðmaðurinn dr. Steinar Holden, en hann hefur skrifað þrjár skýrslur um norska módelið í gegnum tíðina.

Ársfundurinn samþykkti ályktun þar sem tekið er undir skilyrði sem stjórn KÍ setti við SALEK-vinnuna og þegar hún hafnaði að skrifa undir rammasamkomulag SALEK í október 2015.

Lífeyrismál
Á árinu hafa samningaviðræður við fulltrúa fjármálaráðuneytis um lífeyrismál haldið áfram. Grunnur vinnunnar er ósk yfirvalda um breytingar á lífeyris­kerfinu og að í landinu verði í framtíðinni eitt lífeyriskerfi. Opinberir starfsmenn eru í viðræðunum beittir töluverðum þrýstingi af hálfu viðsemjenda og fulltrúum almenna vinnumarkaðarins sem vilja gera talsverðar breytingar á lífeyriskerfinu og jafnframt skoða önnur sérréttindi opinberra starfsmanna. Markmið hins opinbera er að búa til eitt lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn. Við förum varlega inn í þessar viðræður með að markmiði að verja áunnin réttindi og eigum í góðu samstarfi við önnur heildarsamtök opinberra starfsmanna (BHM og BSRB). Ársfundur KÍ samþykkti ályktun um lífeyrismál þar sem ályktun síðasta þings KÍ var ítrekuð.

Að lokum
Enn er ósamið við FT og er það alvarlegt mál. Mikilvægt er að félagsmenn KÍ í FT njóti launahækkana sem eru í takt við launahækkanir annarra kennara. Ég skora á samninganefnd sveitarfélaganna að koma til móts við kröfur FT þannig að hægt sé að ljúka kjarasamningagerð við félagið hið fyrsta.

Um leið og ég óska ykkur gleðilegs sumars hvet ég ykkur öll til að taka þátt í umræðum um skólamál, vera fagleg, bera virðingu fyrir skoðunum annarra og vanda málflutning.  

Með félagskveðju,
Þórður Árni Hjaltested

 

Greinin birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2016.