Stolt fagstétt

„Við erum ekki eins og Englendingar. Við förum okkar eigin leiðir.“ Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, skrifar.
„Við erum ekki eins og Englendingar. Við förum okkar eigin leiðir.“
Stjórn, samninganefnd og starfsfólk Félags framhaldsskólakennara skruppu til Edinborgar nú í blábyrjun nóvember 2019. Á dagskránni voru fundir með stærstu kennarasamtökum Skota (Educational Institute of Scotland (EIS)) og Skoska kennararáðinu (General Teaching Council for Scotland) en einnig vinnufundur samninganefndar.
Við byrjuðum föstudaginn í höfuðstöðvum EIS þar sem forseti samtakanna, Bill Ramsay, og David Belsey ritari fræddu okkur um skoska skólakerfið og þessi stærstu kennarasamtök Skota. Það var strax greinilegt hversu stoltir Skotar eru af því hvernig skólamálum er háttað í landinu. Edinborg var auðvitað suðupottur hinnar skosku upplýsingar og upp úr henni reis öflugt skólakerfi og einnig EIS sem eru elstu kennarasamtök heims, stofnuð árið 1847. Tilgangur samtakanna var þá og er enn „promoting sound learning and advancing the interests of education in Scotland“. Sem sagt, undir öllu starfi liggur áherslan á gæði og virðingu menntunar.
EIS samtökin hafa mikil áhrif í skosku samfélagi. Þessi langstærstu kennarasamtök landsins hafa neitunarvald í flestum málefnum stéttabaráttunnar, en þau beita sér einnig mjög í skólamálaumræðu og samfélagsmálum almennt. Bill var stoltur þegar hann gat sýnt íslenskum gestum sínum The Herald, blað dagsins, þar sem eitt af baráttumálum samtakanna var tekið upp á forsíðunni.
„Það er allt annað ástand í skólum Skotlands en í Englandi,“ segja þeir báðir. „Í Englandi má draga hvern sem er upp af götunni, skella honum á stutt námskeið og þá fær hann leyfi til að kenna.“
Í Skotlandi er alveg skýrt að þar þurfa allir að klára sína fimm ára kennaramenntun áður en þeir fá leyfi til að starfa í skólum landsins. Síðasta þrepið í kennaranáminu er launað starfsnám til eins árs sem um leið er nokkurs konar inntökupróf eða reynsluár fyrir kennarastarfið. Þeir sem ekki standast starfsnámið verða að snúa sér að öðru. Síðan 1973 starfa engir réttindalausir kennarar í skoskum skólum.
Laun kennara 30% hærri en meðallaun
Laun kennara í Skotlandi verða að teljast nokkuð góð, enda eru meðallaun kennara næstum 30% hærri en meðallaun í landinu. Laun á reynsluári eru frekar lág en hækka mikið strax að því loknu og eftir það árlega í fimm ár. Síðan gerist ekkert í launum nema kennari fái stöðuhækkun og verði Principal, Head eða Deputy Teacher (hvað sem það gæti nú heitið hér uppi á Fróni) en þeir kennarar geta jafnvel náð tvöföldum launum meðalkennarans. En þegar Bill og David tala um helstu áskoranir samtakanna sjáum við ansi kunnuglegar myndir: vinnuandi, álag í starfi, dvínandi kaupmáttur, ráðningar og brotthvarf úr stéttinni, fáir möguleikar til framgangs í starfi og stöðugar umbótahugmyndir stjórnvalda.
Eftir hádegi hittum við þau Ken Muir, framkvæmdastjóra Skoska kennararáðsins, GTCS, og doktor Pauline Stephen, verkefnisstjóra, í fallegum húsakynnum ráðsins í útjaðri Edinborgar. Hið fyrsta sem Ken vildi tryggja að við áttuðum okkur örugglega á var þetta: „Skotland er ekki England!“ – Við vorum svo sem búin að ná þessu eftir morguninn í EIS en þarna fór manni að skiljast að stoltið og metnaðurinn er leiðarstef í skoskri þjóðarsál.
Kennararáðið og starf þess tekur einmitt mið af þessum metnaði kennara fyrir gæðum starfsins og stöðu stéttarinnar í skosku samfélagi. Í ráðinu sitja 37 meðlimir. Meirihluti, eða 19 starfandi kennarar, eru kosnir af félögum sínum til setu í ráðinu. Bill og David í EIS nefndu einmitt í sínu erindi að samtökin hvettu sína félagsmenn eindregið til að gefa kost á sér til að tryggja áhrif samtakanna inni í ráðinu. Ýmsir hagaðilar eiga ellefu sæti og leikmenn eða almennt áhugafólk um menntun sjö. Hlutverk ráðsins eru helst þau að halda skrá yfir kennara í landinu, móta og endurnýja hæfniviðmið kennara og skólastjórnenda, veita kennurum leyfisbréf til reynslu og að fullu, tryggja að kennarar uppfylli hæfniviðmið, stundi starfsþróun og haldi sig innan siðareglna og að lokum að veita yfirvöldum ráðgjöf í skólamálum og um faglegt starf í skólum. Kennarar greiða 65 pund á ári (um 10.500 kr.) inn í ráðið.
Kennarar setja hæfniviðmið
Það er sem sagt kennarastéttin sjálf, formlega óháð ríkisvaldinu, sem setur sér skýr og ítarleg hæfniviðmið, stuðlar að starfsþróun stéttarinnar og tryggir gæði skólastarfsins. Árið 1965, þegar ráðið var stofnað, var mikið um réttindalaust fólk við kennslu í skólum en átta árum síðar, árið 1973, hafði tekist að manna allar stöður í skólum með fullgildum kennurum og þannig hefur það haldist alla tíð síðan. Stærsti hluti rekstrarfjár ráðsins fer til starfsþróunar kennarastéttarinnar og í skipulag launaða starfsnámsins en vænn hluti fer einnig í að tryggja að kennarar vinni samkvæmt hæfniviðmiðum og siðareglum. Af þeim 76.000 kennurum sem starfa í landinu misstu 27 leyfi til kennslu eftir að hafa farið í gegnum eftirlitskerfi ráðsins. Þrír misstu leyfið vegna þess að þeir gátu ekki lengur talist hæfir en 24 vegna óæskilegrar hegðunar, oftast á vef- og samskiptamiðlum.
Nú stendur yfir vinna hér heima um mótun kennararáðs. Ný lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda (lög nr. 95/2019) taka gildi um áramótin þar sem kveðið er á um kennararáð og hæfniviðmið kennarastéttarinnar. Oft hefur verið minnst á Skotland, og Írland reyndar líka, sem fyrirmyndir í þessum efnum en það sem lögin kalla eftir er einhvern veginn allt í lausu lofti, ómótað og hefur lítið með metnað og stolt kennarastéttarinnar að gera.
Okkur ellefu sem áttum þessa fundi með EIS og GTCS í Edinborg fannst við læra ótrúlega mikið um það hvernig heil stétt kennara getur sameinast um grunngildi góðrar menntunar og hvað einkennir góða kennara. Lykilatriði er að vinna hæfniviðmið og að ævilangri starfsþróun á faglegum forsendum en ekki undir hæl stjórnvalda eða vinnuveitenda.
- Greinin birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2019.