Stolt er styrkur

Fréttir|8. ágúst 2024

Hinsegin dagar standa yfir dagana 6.-11. ágúst. Hápunktinum verður náð á laugardaginn þegar gleðigangan fer fram í Reykjavík. Stolt er styrkur er slagorð hátíðarinnar í ár.

Regnbogafánar af ýmsum gerðum blakta víða þessa dagana enda standa Hinsegin dagar yfir dagana 6. til 11. ágúst. Stolt er styrkur er slagorð hátíðarinnar að þessu sinni. Hér er hægt að kynna sér dagskránna. Gleðigangan, hápunktur hátíðarinnar, fer fram laugardaginn 10. ágúst. Lagt verður af stað frá Hallgrímskirkju klukkan 14:00 og gengið í Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við. 

„Í gleðigöngunni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín. Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur unnist í baráttunni,“ segir á vef hinsegindaga. 

Fulltrúar Kennarasambandsins létu sig ekki vanta í gönguna í fyrra. Á myndinni eru Arndís Þorgeirsdóttir, sviðstjóri upplýsinga- og kynningarsviðs, Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ og Sigurður Sigurjónsson, formaður FSL.

Kennarasamband Íslands styður heilshugar við réttindabaráttu hinsegin fólks og hvetur til þátttöku í gleðigöngum laugardagsins.

„Öll eiga jafnan rétt á að njóta mannréttinda óháð kyni, kynhneigð, búsetu, þjóðerni, líkamsgerð, trú, tungumáli og öðru. Öll eiga jafnan rétt á að vera þau sjálf," skrifaði Jónína Hauksdóttir í pistli á síðasta ári. Þetta rímar við inntak Skólastefnu KÍ en þar segir meðal annars eftirfarandi: „Allir nemendur eiga rétt á að njóta upplýsinga, menningar, vísinda, tengsla við aðra og jafnra tækifæra í skólanum, óháð breytum á borð við félagslega stöðu, búsetu, kyn, kynhneigð, líkamsgerð, móðurmál og námsgetu.“

Sjáumst stolt í göngunni á laugardaginn.