Stjórnendur leikskólanna séu með í ráðum
Samráðsfundur Félags stjórnenda leikskóla, sem haldinn var á Bifröst 24. ágúst síðastliðinn, hvetur sveitarstjórnarfólk og ráðamenn í leikskólamálum til að nýta sérfræðiþekkingu leikskólastjórnenda þegar ákvarðanir um leikskólamál eru teknar.
Þetta er meðal þess sem kemur fram á ályktun samráðsfundarins. Þar segir jafnframt að leikskólastjórnendur séu í daglegum tengslum við þá sem nýta leikskóla landsins og þekki því vel hvernig leikskólastarfi er best háttað í þágu barna, foreldra og samfélagsins alls. Mikilvægt sé að stjórnendur leikskólanna séu með í ráðum við ákvarðanir um ytri ramma leikskólanna.
Ályktunin í heild hljóðar svo:
Frá samráðsfundi Félags stjórnenda leikskóla
Bifröst 24. ágúst 2016
Samráðsfundur Félags stjórnenda leikskóla hvetur sveitarstjórnarfólk og ráðamenn í leikskólamálum til þess að nýta sér sérfræðiþekkingu leikskólastjórnenda við ákvarðanatökur um leikskólamál.
Leikskólastjórnendur eru í daglegum tengslum við þá sem nýta leikskóla landsins, og þekkja því vel hvernig leikskólastarfi er best háttað í þágu barna, foreldra og samfélagsins alls.
Leikskólastjórnendur stýra og bera ábyrgð á innra starfi leikskóla. Því er mikilvægt að þeir finni fyrir trausti rekstraraðila. Þetta verður best gert með því að stjórnendur leikskólanna séu með í ráðum þegar teknar eru ákvarðanir um ytri ramma leikskólanna. Þetta á ekki síst við um það er varðar þjónustustig og fyrirkomulag leikskóla, Með þessu ætti að sparast bæði tími og fyrirhöfn þegar til lengri tíma er litið.