Stjórnendur leikskóla semja

Fréttir|2. desember 2015

Samninganefnd Félags stjórnenda leikskóla skrifaði undir nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga upp úr klukkan átta í kvöld. Gildistími samningsins er frá 1. júní 2015 til 31. mars 2019.

Efni og innihald samningsins verður kynnt á fundum um land allt á næstu dögum. Upplýsingar um fundarstaði og fundartíma verða birtar hér á heimasíðu KÍ um leið og þær liggja fyrir.

Félagar í FSL munu geta geta kynnt sér kjarasamninginn hér á heimasíðunni frá og með morgundeginum.