Stjórnarkjör hafið hjá Félagi stjórnenda leikskóla

Níu bjóða fram krafta sína í kjörinu og verða kosnir sjö fulltrúar; fjórir aðalmenn og þrír til vara. Kjörtímabil stjórnar er fjögur ár, stendur frá aðalfundi FSL í maí næstkomandi og til aðalfundar árið 2022.
Rafræn atkvæðagreiðsla um nýja stjórn Félags stjórnenda leikskóla hófst klukkan 9:00 í morgun og stendur til klukkan 14:00 mánudaginn 12. mars. Níu bjóða fram krafta sína í kjörinu og verða kosnir sjö fulltrúar; fjórir aðalmenn og þrír til vara. Kjörtímabil stjórnar er fjögur ár, stendur frá aðalfundi FSL í maí næstkomandi og til aðalfundar árið 2022.
Frambjóðendur eru Guðný Anna Þóreyjardóttir, Gyða Guðmundsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Hildur Arnar Kristjánsdóttir, Hulda Jóhannsdóttir, Jónína Hauksdóttir, Lena Sólborg Valgarðsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Vigdís Guðmundsdóttir.
UM ATKVÆÐAGREIÐSLUNA
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Mig vantar Íslykil sem er á innskráningarsíðunni.
- Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin. Smelltu á Kosning í stjórn FSL 2018 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Merktu við þá frambjóðendur sem þú vilt kjósa í stjórn FSL.
- Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Athygli skal vakin á því að einungis er hægt að kjósa fjóra í stjórn félagsins, hvorki fleiri né færri. Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is, sími: 595 1111.
Kjörstjórn Félags stjórnenda leikskóla skipa Anna Karen Ásgeirsdóttir Maríanna Guðríður Einarsdóttir Sigrún Björk Benediktsdóttir
ÖNNUR TRÚNAÐARSTÖRF INNAN FSL
Kosið verður í önnur trúnaðarstörf innan FSL á aðalfundi félagsins á vordögum; svo sem samninganefnd, skólamálanefnd, framboðsnefnd, kjörstjórn, fulltrúa í stjórn Vísindasjóðs og skoðunarmenn reikninga. Þeir sem hyggjast gefa kost á sér í þessi embætti eru beðnir að senda tilkynningu þess efnis á netfangið frambodsnefndfsl@ki.is.