Stjórnarkjör hafið hjá Félagi leikskólakennara

Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 14:00 föstudaginn 16. febrúar. Atkvæðisrétt hafa allir féalgsmenn Félags leikskólakennara samkvæmt félagatali KÍ.
Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla um kosningu í stjórn Félags leikskólakennara hófst klukkan 9:00 í morgun. Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 14:00 föstudaginn 16. febrúar. Atkvæðisrétt hafa allir féalgsmenn Félags leikskólakennara samkvæmt félagatali KÍ.
Frambjóðendur til stjórnar eru:
- Hanna Berglind Jónsdóttir
- Hanna Rós Jónasdóttir
- Helga Charlotte Reynisdóttir
- Hulda Þorbjörg Stefánsdóttir
- Jakobína Rut Hendriksdóttir
- Laufey Heimisdóttir
- Sigurlaug Einarsdóttir
- Sveinlaug Sigurðardóttir
- Sverrir Jensson Dalsgaard
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Mig vantar Íslykil sem er á innskráningarsíðunni.
Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin. Smelltu á Kosning í stjórn FL 2018 og þá birtist atkvæðaseðillinn. Merktu við þá frambjóðendur sem þú vilt kjósa í stjórn FL.Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið. Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.