Stjórn Sjúkrasjóðs hefur haldið 200 fundi

Fundur stjórnar Sjúkrasjóðs markar tímamót.
Stjórn Sjúkrasjóðs KÍ kom saman til hefðbundins stjórnarfundar í gær. Fundurinn markaði þó tímamót því þetta var 200. fundur stjórnarinnar. Kristin Stefánsdóttir stýrði fundinum en hún hefur gegnt formennsku í sjóðnum síðan 2014 og hefur átt sæti í stjórn frá stofnun hans árið 2001.
Umsvif sjúkrasjóðs eru mikil og voru rúmar 500 milljónir króna greiddar út til félagsmanna á síðasta ári. Sjúkradagpeningar eru stærsti útgjalddaliðurinn og nam upphæð þeirra um 250 milljónum króna í fyrra. Þá voru félagsmenn styrktir til gleraugnakaupa fyrir tæpar 20 milljónir og 65 milljónir voru greiddar út í fæðingarstyrki.
Þjónustufulltrúar í Kennarahúsinu afgreiða stærsta hluta umsókna sjóðsins, sem voru vel á sjöunda þúsund talsins í fyrra, en stjórnin fjallar um úthlutun sjúkradagpeninga og umsóknir vegna kostnaðarsamra læknisaðgerða. Stjórnin fylgist auk þess grannt með starfseminni frá mánuði til mánaðar.
Hlutverk sjúkrasjóðs er að veita félagsmönnum KÍ fjárhagsaðstoð vegna veikinda og slysa, styðja við endurhæfingu og forvarnir auk þess að veita útfararstyrki. Úthlutunarreglur sjóðsins eru á vef KÍ.
Stjórn sjúkraðsjóðs er skipuð sjö félagsmönnum og sjö til vara. Fyrirkomulagið er þannig að hvert aðildarfélag innan KÍ tilefnir einn aðalmann og einn varamann. Aðalmenn í stjórn nú eru Kristín Stefánsdóttir formaður (FT), Anna Helga Sigfúsdóttir (FL), Guðmunda Anna Birgisdóttir (FF), Anna Sigríður Pétursdóttir (SÍ), Lilja Eyþórsdóttir (FSL), Margrét Sigríður Þórisdóttir (FG) og Sigurborg Matthíasdóttir (FS).