Stjórn KÍ gerir athugasemdir við málflutning ráðherra

Fréttir|14. janúar 2022

Stjórn Kennarasambands Íslands gerir alvarlegar athugasemdir við þann málflutning ráðherra að skólum þurfi að halda opnum til að konur komist í vinnuna. „Þegar horft er til Íslands sem fyrirmyndar um skólastarf á tímum farsóttar er ekki verið að horfa til málflutnings stjórnmálamanna heldur starfa þeirra þúsunda sem halda skólakerfinu gangandi."

Í tilefni af málflutningi forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra þegar ný reglugerð, um takmarkanir vegna heimsfaraldurs, var kynnt vill stjórn KÍ koma eftirfarandi á framfæri: 

Í 22 mánuði hefur kórónuveiran verið viðfangsefni íslensks samfélags. Á þeim tíma hafa erlend ríki horft mjög til Íslands sem fyrirmyndar í því hvernig menntakerfi geti tekist á við erfiðleika af þessu tagi. Hér hafa vissulega orðið raskanir á námi og uppsafnaður heilsufarslegur, félagslegur og námslegur vandi er raunverulegur og alvarlegur. Þrátt fyrir það eru skýrar vísbendingar um að íslensku menntakerfi hafi tekist vel að mæta þeim áskorunum sem heimsbyggðin öll hefur glímt við síðustu misseri. 

Lykillinn að þeim árangri felst fyrst og fremst í aðlögunarhæfni og fagmennsku íslensks skólafólks. Allt frá því að það fékk þetta verkefni í fangið hefur það verið vakið og sofið yfir námi og velferð nemenda og reynt að bjarga því sem bjargað yrði. Aðstæður skóla hafa verið afar misjafnar en það sem hefur einkennt þá alla er seigla, aðlögunarhæfni og nýsköpun. Margir skólar hafa tekist á við ítrekuð áföll en skólafólkið gerir enn sitt besta á hverjum degi. 

Sú söguskýring forsætisráðherra að það hafi verið ákvörðun stjórnvalda frá upphafi heimsfaraldurs að halda skólum opnum er röng. Áætlanir stjórnvalda gengu í upphafi út á stórfelldar lokanir skóla og tilfærslu náms yfir í fjarnám, meðal annars með atbeina Menntamálastofnunar og Ríkisútvarpsins. Fallið var frá þeirri leið eftir samráð við fulltrúa skólasamfélagsins sem bentu á að farsælli leið væri að treysta því að skólafólk á hverjum stað væri best til þess fallið að leita leiða til að halda skólastarfi gangandi. 

Þegar horft er til Íslands sem fyrirmyndar um skólastarf á tímum farsóttar er ekki verið að horfa til málflutnings stjórnmálamanna heldur starfa þeirra þúsunda sem halda skólakerfinu gangandi. Ef stjórnmálamenn hafa áhuga á að læra af árangri íslenskra stjórnmálamanna í menntamálum síðustu misserin er lærdómurinn sá að rétt sé að treysta á fagfólk og eiga í öflugu samráði. Núverandi menntamálaráðherra hefur lýst vilja til þess að vinna áfram með þeim hætti og komið hefur verið á daglegum samráðsfundum þar sem aðilar skólasamfélagsins eiga sína fulltrúa. Á hverjum degi frá áramótum hefur stjórn Kennarasambands Íslands fundað til að vakta stöðu skólamála. Formenn aðildarfélaga KÍ hafa séð til þess að stjórnvöld, almannavarnir, sóttvarnarlæknir og aðrir séu sem best upplýstir um stöðu mála á hverjum tíma.  Er það meðal annars gert í þeim tilgangi að ákvarðanir séu upplýstar og vandaðar. 

Sú ákvörðun stjórnvalda í dag að halda skólastarfi óbreyttu var ekki rædd á fyrrnefndum samráðsvettvangi aðila þótt skilja mætti orð heilbrigðisráðherra sem svo að um samráð hafi verið að ræða. Sú ákvörðun var tekin af ríkisstjórninni og er á ábyrgð hennar. Raunveruleikinn er sá að þegar hafa orðið miklar raskanir á skólastarfi frá áramótum og það verður afar flókið að standa vörð um menntun í landinu á næstu dögum og vikum. Leiðin áfram hlýtur að byggja á því sem hingað til hefur virkað: Að hlusta á og treysta fagfólki. Við höfum dæmi víðar en úr skólastarfi um það að stjórnvöldum fer þá fyrst að skrika fótur þegar þau taka eigin pólitísku sannfæringu fram yfir ráð þeirra sem best til þekkja. 

Stjórn Kennarasambands Íslands skorar á ríkisstjórn Íslands að standa vörð um menntakerfið og menntun og hlusta á ráð færustu sérfræðinga, hvort sem um er að ræða nám eða sóttvarnir. Þá gerir stjórnin alvarlega athugasemd við þann málflutning að skólum þurfi að halda opnum til að konur komist í vinnuna. Ef stjórnvöldum er jafn annt um jafnrétti og þau segja eru þeim hæg heimatökin að byrja á eigin ranni – enda viðhalda þau sjálf einu stærsta, kerfislæga ójafnrétti íslensks samfélags: láglaunastefnu kvennastétta í opinberum störfum.