Stjórn KÍ ályktar um skólastarf og aðstæður í Grindavík

Stjórn Kennarasambands Íslands segir lykilatriði að kennurum, skólastjórnendum og skólafólki í Grindavík verði gefinn tími og tilfinningalegt svigrúm til að vinna úr áföllum og ná áttum áður en horft er til þess að snúa aftur til starfa.
„Horfa verður til skólastarfs út frá því sjónarhorni að nærgætni fyrir aðstæðum sé höfð í hávegi og kennarar og stjórnendur fái faglega aðstoð til að vinna úr sínum áföllum og svigrúm til að koma festu á líf sitt áður en kemur að því að koma aftur til starfa.“ Svo segir í ályktun sem stjórn Kennarasambandsins sendi frá sér í morgun, vegna aðstæðna í Grindavík.
Ályktunin hljóðar svo
16. nóvember 2023
Ályktun stjórnar Kennarasambands Íslands vegna aðstæðna í Grindavík
Íslensk náttúra getur verið óútreiknanleg og snúið öllu á hvolf. Það verðum við áþreifanlega vör við þessa dagana þegar jarðskjálftar og möguleiki á eldgosi hefur orðið til þess að bæjarfélagið Grindavík hefur með nær engum fyrirvara verið rýmt. Í slíkum aðstæðum skiptir öllu máli að stjórnvöld og íslenskt samfélag taki þétt utan um þau sem fyrir áfallinu hafa orðið og komi til móts við aðstæður þeirra og raunveruleika.
Einn angi umræðu um viðbrögð við þessum aðstæðum snýr að skólastarfi fyrir börnin þar sem að nú eru leik-, grunn- og tónlistarskólar þeirra ekki starfandi. Þörf fyrir rútínu, nám og samveru barnanna er mikilvæg, sem og það að vinna úr þeim áföllum sem þau verða fyrir.
Sama áfalli hafa kennarar og stjórnendur skólanna í Grindavík orðið fyrir. Þau, eins og aðrir, eru enn í miðjum atburði og búa við óvissu um stærstu sem smæstu atriði daglegs lífs. Við bætist álagið við að reyna að nálgast það sem þeim er leyft að sækja, lítill svefn og ekki má gleyma að þau eiga líka börn, foreldra, ættingja og vini sem þarf að halda utan um á þessum óvissutímum.
Það er lykilatriði að þeim, eins og öðrum í grindvísku samfélagi, verði gefinn tími og tilfinningalegt svigrúm til að vinna úr áfallinu og þau fái næði til að ná áttum áður en horft er til þess að snúa aftur til starfa. Þau verða að fá að vera íbúar í áfalli, vera með sínum nánustu og leyfa sér að reiðast, gráta og tala um reynslu sína hvert við annað.
Horfa verður til skólastarfs út frá því sjónarhorni að nærgætni fyrir aðstæðum sé höfð í hávegi og kennarar og stjórnendur fái faglega aðstoð til að vinna úr sínum áföllum og svigrúm til að koma festu á líf sitt áður en kemur að því að koma aftur til starfa.
Um þau, eins og aðra Grindvíkinga, þarf að byggja varnargarð umhyggju, alúðar og virðingu fyrir þeirri óvissu sem ríkir um framtíð heimkynna þeirra.
Stjórn Kennarasambands Íslands.