Stjórn KÍ ályktar um kjarabaráttu tónlistarkennara

Fréttir|17. október 2014

Stjórn Kennarasambands Íslands harmar að tónlistarskólakennarar skuli þurfa að grípa til þess neyðarúrræðis að boða verkfall meðal félagsmanna sinna. Stjórnin bendir jafnframt á að ábyrgð vinnudeilunnar hvíli á herðum stjórnvalda því félagar í FT geti með engu móti sætt sig við lakari kjör en aðrir félagsmenn KÍ njóta.

Þá eru stjórnvöld hvött til að stíga fram og veita sveitarfélögum umboð til að ganga til samninga við Félag tónlistarskólakennara um nauðsynlegar leiðréttingar á kjörum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi KÍ í morgun. 

 

Ályktunin er svohljóðandi: 

Stjórnarfundur KÍ haldinn 17. október 2014 harmar að Félag tónlistarskólakennara hafi þurft að grípa til þess neyðarúrræðis að boða verkfall meðal félagsmanna sinna. Stjórn KÍ bendir á að ábyrgð vinnudeilunnar hvílir fyrst og fremst á herðum stjórnvalda því tónlistarskólakennarar og stjórnendur tónlistarskóla geta með engu móti unað við að vera lægra sett en aðrir félagsmenn KÍ í launum. Tilboð samninganefndar sveitarfélaga er algerlega óviðunandi og myndi skilja tónlistarskólakennara og stjórnendur tónlistarskóla verulega í launum frá öðrum félagsmönnum KÍ.

Slík mismunun í launum einstakra félagsmanna Kennarasambands Íslands er algerlega óásættanleg enda í andstöðu við markmið Sambands íslenskra sveitarfélaga um að sambærileg og jafnverðmæt störf séu launuð með sama hætti.

Það er mikilvægt að þessi deila leysist sem fyrst svo hún bitni ekki á tónlistarnemendum út um land allt. Það uppbrot á tónlistarnámi sem verkfall myndi valda getur haft veruleg áhrif á námsframvindu og þann árangur sem námsárið skilar tónlistarnemendum. Það er í takt við þarfir einstaklingsins sem og samfélagsins í heild að gera tónlistarkennslu jafnhátt undir höfði og öðrum námsgreinum í menntakerfinu.

Stjórn KÍ skorar á stjórnvöld að stíga fram og veita samninganefnd sveitarfélaga umboð til að mæta réttmætum kröfum tónlistarskólakennara og stjórnendum tónlistarskóla um nauðsynlegar kjaraleiðréttingar.