Stjórn FSL harmar ákvörðun heilbrigðisráðherra

Mikilvægi leikskólastigsins fyrir framlínustarfsfólk er óumdeilt en hægt hefði verið að halda leikskólum opnum með lágmarksstarfsemi fyrir vel skilgreinda forgangshópa.
Stjórn Félags stjórnenda leikskóla hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun um takmarkanir á skólastarfi vegna COVID-19.
Stjórn Félags stjórnenda leikskóla harmar ákvörðun heilbrigðisráðherra þann 24. mars að setja ekki takmarkanir á starfsemi leikskóla líkt og gert er með önnur skólastig.
Mikilvægi leikskólastigsins fyrir framlínustarfsfólk er óumdeilt en hægt hefði verið að halda leikskólum opnum með lágmarksstarfsemi fyrir vel skilgreinda forgangshópa.
Stjórnin bendir á að þessi mikilvægi hópur, starfsmenn leikskóla, sem heldur úti skólastarfi þegar öðrum skólastigum er gert að loka sínum skólum er einungis í áttunda sæti af níunda af skilgreindum forgangshópum samkvæmt reglugerð 221/2001.
Að lokum viljum við hvetja foreldra leikskólabarna til að halda börnum sínum heima fram yfir páska til að hefta útbreiðslu veirunnar.