Stjórn FS lýsir áhyggjum af stöðu kjaraviðræðna hjá FT og FSL
Stjórn Félags stjórnenda í framhaldsskólum hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er yfir áhyggjum af stöðu mála í kjaraviðræðum Félags tónlistarskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla við Samband íslenskra sveitarfélaga. Því er beint til samninganefndar Sambandsins að horfa til þeirra kjarasamninga sem þegar hafa verið gerðir við önnur aðildarfélög KÍ.
Ályktunin er svohljóðandi:
Stjórn Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) lýsir yfir áhyggjum af stöðu mála í samningaviðræðum Félags tónlistarskólakennara (FT) og Félags stjórnenda leikskóla (FSL) við Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS).
Stjórn FS bendir á að mismunun í launum einstakra félagsmanna Kennarasambands Íslands er í andstöðu við markmið SÍS um jafnrétti í launasetningu og að sambærileg og jafnverðmæt störf séu launuð með sama hætti.
Við vekjum athygli á að hið frábæra starf sem unnið er í leikskólum landsins er mótað af félagsmönnum FSL ásamt félagsmönnum Félags leikskólakennara.
Okkur öllum er ljóst hve starf í tónlistarskólum skiptir samfélagið miklu máli, hið gróskumikla tónlistarlíf í landinu er augljóst dæmi hér um. Við sem störfum í framhaldsskólum landsins sjáum skýr dæmi um hve menntun í tónlist og listum almennt hefur jákvæð áhrif á námsgengi nemenda.
Það vekur því furðu okkar að ekki skuli nú þegar gengið til samninga við Félag tónlistarskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla og við beinum því til samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga að horfa til þeirra samninga sem þegar hafa verið gerðir við önnur aðildarfélög Kennarasambands Íslands.
Fyrir hönd stjórnar Félags stjórnenda í framhaldsskólum
Ólafur H. Sigurjónsson, formaður FS