Stjórn FL lýsir áhyggjum vegna stöðu kjaraviðræðna hjá FT og FSL

Fréttir|4. júlí 2014

Stjórn Félags leikskólakennara hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er áhyggjum vegna þess að enn er ósamið við Félag tónlistarskólakennara og Félag stjórnenda í leikskólum. 

Ályktunin er svohljóðandi: 

Stjórn Félags leikskólakennara lýsir áhyggjum sínum yfir því að ekki sé búið að semja við Félag tónlistaskólakennara og Félag stjórnenda í leikskólum.

Bæði tónlistaskólakennarar og stjórnendur í leikskólum gegna mikilvægu hlutverki í menntakerfi landsins. Það er því ekki við hæfi að þessi hópur sé búinn að vera samningslaus frá því í janúar 2014 og verði áfram samningslaus fram á haust eins og allt stefnir í.

Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara.