Stjórn FL fagnar styttri dvalartíma leikskólabarna í Reykjavík

Fréttir|2. desember 2022

Dvalartími barna á leikskólum í Reykjavík verður að hámarki níu klukkustundir á dag, þó ekki meiri en 42,5 stundir á viku, þegar nýjar reglur taka gildi í næsta mánuði. Áður máttu börn dvelja allt að níu og hálfa klukkustund á dag á leikskólanum alla daga vinnuvikunnar. Stjórn FL fagnar ákvörðun borgarinnar.

Styttingin, sem er tilraunaverkefni borgarinnar til ársins 2024, er í samræmi við tillögur sem stýrihópur um umbætur og skipulag leikskólastarfs skilaði á síðasta ári. Með þessu á að bæta starfsumhverfi, draga úr álagi á börn og foreldra og tryggja gæði leikskólastarfs. 

Stjórn Félags leikskólakennara fagnar ákvörðuninni í nýrri ályktun:

„Í samanburði við lönd innan OECD eru íslensk börn með lengstu viðveru í leikskólum. Hvort heldur sem horft er til daglegrar viðveru eða fjölda vikna á ári. Börn eru viðkvæmur hópur í samfélaginu og slíkir hópar geta gjarnan orðið undir þegar tekist er á um hagsmuni. Það er til dæmis mjög afhjúpandi hve samfélag, sem hugfangið hefur verið af styttingu vinnuviku fullorðinna síðustu misseri, gefur lítinn gaum að styttingu skólavikunnar. Það er staðreynd að stytting vinnuvikunnar heilt yfir vinnumarkaðinn hefur ekki leitt til styttri meðaldvalartíma barna í leikskólum. Því þarf samfélagið að breyta og ákvörðun Reykjavíkurborgar núna er skref í þá átt.“

Hér má sjá ályktun stjórnar Félags leikskólakennara í heild.