Stjórn FG skiptir með sér verkum – Hjördís valin varaformaður
Fréttir|19. maí 2018

Stjórnin skipti með sér verkum á fundinum og var Hjördís Albertsdóttir valin í embætti varaformanns FG. Sigurður Freyr Sigurðarson er nýr ritari félagsins og Hreiðar Oddsson er gjaldkeri.
Ný stjórn Félags grunnskólakennara hélt sinn fyrsta stjórnarfund að loknum aðalfundi félagsins, sem lauk í Borgarnesi síðdegis í gær, föstudaginn 18. maí.
Stjórnin skipti með sér verkum á fundinum og var Hjördís Albertsdóttir valin í embætti varaformanns FG. Sigurður Freyr Sigurðarson er nýr ritari félagsins og Hreiðar Oddsson er gjaldkeri.
Meðstjórnendur eru Anna Guðrún Jóhannesdóttir, Jens Guðjón Einarsson og Ásthildur Lóa Þórsdóttir.
Nýr formaður FG er, sem kunnugt er, Þorgerður Laufey Diðriksdóttir og tók hún formlega við formennsku félagsins í gær.