STÍL stjórnarfundur í september

Kristjana Björg fór fyrir þýzkufélagið á STÍL fund í Veröld, hús Vigdísar (HÍ). Lesið þið hérna hvernig var.
Evrópski tungumáladagurinn
Evrópska tungumáladeginum verður fagnað þann 26. september næstkomandi. Dagurinn er að þessu sinni tileinkaður tungumálum Róma-fólks. Ástæða þess er útkoma nýrrar bókar um uppruna, tungumál og bókmenntir Róma-fólks víðs vegar um Evrópu. Kennurum stendur til boða að falast eftir þegar tilbúnum glærum um efnið, ásamt upplestri á þýðingum úr bókinni til að fagna deginum. Efnið verður aðgengilegt hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur (valgerdur@hi.is) á næstu dögum. Skólar eru hvattir til að halda upp á Evrópska tungumáladaginn, hver með sínum hætti, tveimur virkum dögum fyrir og eftir laugardaginn 26. september. Til viðbótar er hægt að nálgast nýútkomin veggspjöld - til að vekja athygli á deginum og hengja upp í skólunum - hjá Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands, í Veröld, húsi Vigdísar (ems@hi.is).
Vinnustofur
Þrjár fyrirhugaðar vinnustofur sem til stóð að halda á vegum STÍL og SVF nú á haustmisseri falla því miður niður vegna COVID-19 faraldursins. Skipulagning þeirra verður tekin upp að nýju um leið og ástandið í samfélaginu leyfir.
Fjármál og félagsgjöld
Nokkur fagfélög eiga enn eftir að greiða aðildargjöld að STÍL v/2020. Félagið stendur þó vel, enda hafa umtalsverðir styrkir fengist vegna ráðstefnunnar Future of Languages, sem halda átti í júní 2020 en frestað hefur verið til júní 2021. Að auki hafa lítil sem engin útgjöld verið vegna skertrar starfssemi félagsins undanfarna mánuði.
Aðalfundur STÍL
Stjórn STÍL samþykkti einróma á fundinum að í ljósi aðstæðna í samfélaginu yrði aðalfundinum sem halda átti í maí 2020 frestað til vorsins 2021.
Ráðstefnan Future of languages
Skipulagning ráðstefnunnar Future of Languages, um framtíð náms og kennslu í tungumálum, sem var á lokastigi þurfti að fresta vegna COVID-19 faraldursins. Þegar aðstæður í heiminum leyfa verður undirbúningi ráðstefnunnar fram haldið. Gert er ráð fyrir því að um miðjan janúar 2021 verði aftur kallað eftir erindum og heimasíða ráðstefnunnar virkjuð. Stefnt er að því að halda ráðstefnuna í Veröld – húsi Vigdísar, dagana 11. og 12. júní 2021.
Önnur mál
Fram kom á fundinum að aðstæður til kennslu vegna COVID-19 faraldursins eru krefjandi um þessar mundir og mjög misjafnt milli skóla hvernig staðið er að fjarkennslu. Aðstæður mótast m.a. af búnaði, s.s. fartölvum, tengingum, heyrnartólum o.þ.h. Víðast hvar hafa kennarar fengið lítið greitt aukalega vegna þess aukaálags sem nýjar aðstæður hafa í för með sér. Margir þurfa jafnvel að nota eigin búnað til fjarkennslunnar þar sem skólarnir eru mjög misjafnlega í stakk búnir fjárhagslega til að fjárfesta í nýjum búnaði.
Þá var rætt um mikilvægi þess að standa vörð um sérstöðu erlendra tungumála ekki síst núna þegar kennsluumhverfið er að breytast jafn hratt og raun ber vitni.
Að síðustu var rætt um stöðupróf í tungumálum í framhaldsskólum. Þeirri spurningu var velt upp af hverju prófin væru ekki samræmd á milli skólanna. Samþykkt var að Hólmfríður Garðarsdóttir, formaður STÍL, myndi kanna hjá ráðuneytinu hvernig faglegar forsendur væru tryggðar þ.e. að prófin væru sambærileg á milli skóla og að nemendur væru allir metnir á jafnræðisgrundvelli.