Stéttarfélag lögfræðinga styður tónlistarkennara
Fréttir|21. nóvember 2014
Stjórn Stéttarfélags lögfræðinga ákvað á fundi sínum, fimmtudaginn 20. nóvember, að styrkja verkfallssjóð tónlistarkennara. Upphæð styrksins nemur 750.000 krónum og kemur sér að sjálfsögðu vel.
Í stéttarfélagi lögfræðinga eru rúmlega 600 félagsmenn; lögfræðingar sem starfa hjá ríki, sveitarfélögum og á almennum markaði.