Sterk samstaða kennarafélaga Evrópu

Fréttir|29. apríl 2025

Fulltrúar Kennarasambandsins sóttu Evrópuþing ETUCE, í lok nóvember í Svartfjallalandi. Tilgangurinn var meðal annars að marka stefnu samtakanna til næstu ára og styrkja samstöðu kennarasamtaka Evrópu.

Fulltrúar Kennarasambandsins sóttu Evrópuþing evrópusamtaka kennarafélaga, ETUCE, í lok nóvember. Fulltrúar kennarasamtaka um alla Evrópu komu saman á þinginu, sem haldið er á fjögurra ára fresti og fór í þetta sinn fram í strandbænum Budva í Svartfjallalandi. Yfirskrift þingsins var Barist fyrir framtíð almenningsfræðslu í félagslegri Evrópu. Tilgangurinn var að kjósa nýja stjórn, fjalla um helstu áskoranir kennarastéttarinnar, ræða og greiða atkvæði um ályktanir sem lagðar voru fyrir þing og marka stefnu samtakanna til næstu ára. 

Ný stjórn tók við keflinu 

Í lok þings tók John MacGabhann við af Larry Flanagan sem nýr forseti ETUCE auk þess sem sex nýir varaforsetar voru kjörnir. Nýja stjórnin verður í stafni næstu fjögur ár og vinnur eftir markaðri stefnu þingsins, með mikilvægi almennrar menntunar fyrir alla, faglegt sjálfræði og samstöðu í evrópska kennslusamfélaginu í fyrirrúmi.  

Í ræðu sinni ítrekaði nýi forsetinn mikilvægi hlustunar, skilvirkrar úthlutunar fjármagns og þess að takast á við framtíðaráskoranir menntunar, sér í lagi þegar kemur að loftslagsbreytingum. 

Margvísleg álitamál lögð fyrir þing 

„Fjölmargar ályktanir voru lagðar fram og enn fleiri breytingartillögur,“ segir Jónína Hauksdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands og annar þingfulltrúa. „Flestar ályktanir og breytingartillögur fóru ljúflega í gegn en telja þurfti atkvæði með og á móti nokkrum þeirra þar sem heilmiklar umræður höfðu spunnist í kringum þær.“ 

Barátta fyrir framtíð opinbera menntakerfisins í Evrópu var meðal stærri umfjöllunarefna þingsins og lýst var yfir miklum áhyggjum af áhrifum öfga-hægri afla í Evrópu, sem vilja leynt og ljóst einkavæða menntakerfi Evrópu sem mest, segir Jónína.

Einnig voru lagðar fram ályktanir sem snúa að friði í Úkraínu og álfunni og mikilvægi menntunar barna á stríðshrjáðum svæðum, að áhrifum gervigreindar á kennslu og nám, að baráttu gegn hatri og aðskilnaði, að mikilvægi menntarannsókna nú á tímum og að því hvernig best sé að undirbúa ETUCE fyrir áskoranir framtíðarinnar. 

Menntun er kjarni lýðræðisins og kennarar eru verndarar hennar. Við verðum að tryggja að kennarar hafi réttu tólin og njóti virðingar svo þeir geti uppfyllt skyldu sína í síbreytilegum og krefjandi heimi.

— Odile Cordelier, fráfarandi varaforseti ETUCE. 

 

Þá voru lagðar fram ályktanir um hinn mikla skort á kennurum í álfunni með tillögum að úrbótum. Tekið var fram að lausnin fælist í bættum launum, faglegu sjálfræði og starfsskilyrðum sem væru til þess fallin að laða að og halda kennurum. Fulltrúar kennarasambanda í Bretlandi og Frakklandi sem mæltu með ályktuninni ítrekuðu að leiðsögn, þjálfun og sanngjörn laun væru lykilatriði.  

Samtökin mörkuðu sér stefnu hvað varðar gervigreind og skóla- og menntamál. Farið var yfir bæði jákvæð tækifæri sem felast í tækninni og þær hættur sem henni geta fylgt hvað varðar menntun og skólastarf. Mikilvægt er að nýta og nota gervigreind í námi með ábyrgum hætti og til að tryggja það þurfi kennarar og stéttarfélög þeirra að hafa aðkomu að innleiðingunni.  

Nauðsynlegt að ýta undir umburðarlyndi og lýðræði

Nokkrar ályktanir fjölluðu um auknar áhyggjur í ljósi rísandi öfga-hægriafla í Evrópu og hvernig kennarasamtök álfunnar geti beitt sér til að spyrna á móti öfgum og ýta undir umburðarlyndi og lýðræði. Einn þingfulltrúa kallaði eftir frekari áherslu á menntun um stjórnmál og borgaraleg réttindi og skyldur til að vinna gegn áhrifum öfgaafla. „Við verðum að fagna fjölbreytileikanum og vinna gegn haturspólitík,“ sagði fulltrúi frá Bretlandi.  

Aukið fylgi öfga-hægriafla vekur upp áhyggjur af því að vegið verði að aðgengi og rétti til opinberrar menntunar án aðgreiningar í þágu aukinnar einkavæðingar. Þá er óttinn einnig sá að rannsóknir og rannsóknastörf litist af hagsmunum einkamarkaðarins.  

Larry Flanagan, fráfarandi forseti ETUCE, sagði mikilvægt að leggja áherslu á menntun sem almannagæði og mannréttindi. Þá hvatti hann stéttarfélög til að berjast fyrir félagslegu réttlæti, sanngjörnu fjármagni og bættum starfskjörum kennara til verndunar almennrar menntunar. „Þar sem Evrópa heldur áfram að standa frammi fyrir áskorunum eins og niðurskurði, pólitískum öfgum og kennaraskorti, er ETUCE reiðubúið að beita sér af hörku fyrir félagsmenn sína og kennarastéttina í heild.“