Sterk sameinuð rödd kennara, stjórnenda og ráðgjafa

„Ljóst er að sameinuð rödd kennara, stjórnenda og ráðgjafa sem starfa í ólíkum skólagerðum og á mismunandi skólastigum er sterk. Sú rödd þarf að fara víða,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, í leiðara Skólavörðunnar.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, ritar í leiðara Skólavörðunnar:
„Ágætu félagar. Þá er mætt enn eitt eintak Skólavörðunnar. Ég held að það sé sannarlega hægt að kalla það flaggskip útgáfusviðsins okkar hjá Kennarasambandinu og alltaf er heilmikil gleði þegar tímaritið lítur dagsins ljós. Efni þess nú er, eins og áður, yfirgripsmikið og fer vítt um svið íslenska skólakerfisins.
Dregin eru fram skemmtileg verkefni, varpað ljósi á störf félagsfólks og sagðar fréttir af vettvangi Kennarasambandsins. Útgáfusvið KÍ er mikilvægt íslensku skólafólki. Það gegnir lykilhlutverki þegar kemur að því að flytja fréttir af okkar vettvangi, ekki bara með Skólavörðunni heldur líka með utanumhaldi um vefsíðuna okkar og samfélagsmiðlasíður sem flytja reglulega fréttir sem varða okkur öll. Við vildum að sjálfsögðu ná miklu oftar augum og eyrum annarra fjölmiðla og erum alltaf að vinna að því verkefni en höfum líka á síðustu mánuðum og vikum aukið við á okkar vettvangi og horfum til enn frekari landvinninga á því sviði.
Í kennaravikunni haustið 2023 fórum við af stað með vettvang sem við kölluðum „Kennaravarpið“ þar sem við fórum í myndver og tókum upp stutta þætti með viðmælendum úr stjórnmálunum sem ræddu málefni skólafólks og kerfisins í heild. Ætlun okkar er að á árinu 2024 komumst við enn lengra með það verkefni og okkur takist að búa til vettvang sem yrði aðgengilegur bæði félagsfólki og öðrum á víðáttum veraldarvefsins hið minnsta!
Veturinn sem nú er að klárast má segja að hafi verið með öðrum hætti en við væntum þegar kemur að kjaramálunum. Fyrsta skref áfangasamkomulags um jöfnun launa kom til framkvæmda síðastliðið haust og við töldum næsta mál vera að taka skrefið sem myndi leiða til áætlunar um lúkningu verkefnisins. Um það vorum við afar skýr þegar samkomulagið var undirritað og héldum þeim málflutningi áfram, enda í því áréttað að 15. janúar 2024 skyldi vera komin á slík áætlun. Því miður fór ekki svo.

KÍ hefur talað mjög skýrt. Verkefnið var skýrt árið 2016 með undirritun samkomulags um jöfnun lífeyrisréttinda og við viljum að það verði nú uppfyllt á árinu 2024. Átta árum síðar.
Ýmislegt kom þar til. Gríðarlegur tími fór hjá opinberum launagreiðendum að koma greiðslum, vegna áfangasamkomulagsins, til launafólks með þeim hætti sem ráðgert var. Þegar á veturinn leið varð hægt og rólega ljóst að áherslur allra aðildarfélaga KÍ um mikilvægi þess að ljúka verkefninu voru mun meiri en annarra launþegasamtaka, á opinberum markaði, og í samráði þeirra og launagreiðenda hefur sá hópur verið að vinna að því sem kallað hefur verið næsta skref í átt til jöfnunar.
KÍ hefur talað mjög skýrt. Verkefnið var skýrt árið 2016 með undirritun samkomulags um jöfnun lífeyrisréttinda og við viljum að það verði nú uppfyllt á árinu 2024. Átta árum síðar. Að þessu sinni er ætlun allra aðildarfélaga að koma sameinuð að samningaborðinu meðan á því verkefni stendur. Lúkning verkefnisins um jöfnun launa er forsenda fyrir næsta kjarasamningi fyrir öll kennara- og stjórnendafélög innan okkar raða.
Síðastliðið haust fór varaformaður KÍ ásamt fulltrúum sjóða og útgáfusviðs í hringferð um landið til að hitta félagsfólk. Bæði til að kynna starf sambandsins en ekki síður til að heyra raddir skólafólks úti á vettvangi. Ferðin var vel heppnuð og í framhaldi var tekin ákvörðun um að halda áfram á þeirri braut að efla samtal við félagsfólk. Því var ráðist í undirbúning þjónustu- og viðhorfskönnunar sem var lögð fyrir félagsfólk KÍ í febrúarmánuði og unnin í samvinnu við Félagsvísindastofnun. Niðurstöður hennar voru svo kynntar á stórri ráðstefnu í Hörpu fyrr í þessum mánuði. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Skólastarf nútíðar – vegvísir til framtíðar.“
Ráðstefnan heppnaðist afskaplega vel og ljóst að þar kom fram sterk sameinuð rödd kennara, stjórnenda og ráðgjafa sem starfa í ólíkum skólagerðum og á mismunandi skólastigum. Sú rödd þarf að fara víða og við köllum eftir því að talað sé við okkur frekar en um okkur á ólíkum sviðum samfélagsins. Hvort sem snýr að launakjörum, starfsaðstæðum eða skólaþróun.
Í röddum okkar býr reynslan og í hjörtum okkar logar ástríðan fyrir þeim verkefnum. Við skulum öll sjá til þess að þetta viðhorf verði öllum ljóst, saman erum við sterkari en stök!“