Stemmning á Skólamálaþingi

Frábærir fyrirlesarar stigu á stokk á fjölsóttu Skólamálaþingi Kennarasambands Íslands, sem haldið var í höfuðstöðvum sambandsins í gær, undir yfirskriftinni „Með opnum örmum: Hvernig tökum við sem best á móti nemendum af erlendum uppruna?“
Um fimmtíu manns lögðu leið sína í Borgartúnið að fylgjast með árlegu Skólamálaþingi KÍ og enn fleiri fylgdust með í streymi, enda dagskráin spennandi og fyrirlesarar úr öllum áttum og af ýmsum skólastigum.
- Hægt er að horfa á upptöku frá þinginu hér.
„Börn og ungmenni af erlendum uppruna þurfa að finna að þau séu velkomin í okkar samfélag, finna að þau skipti máli og tilheyri því samfélagi sem þau búa í. Þegar vel tekst til verður okkar litla samfélag ríkara af mannauði, menningarauði, umburðarlyndi og víðsýni", sagði Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, við setningu þingsins.
Glöggt er gests augað
Að setningu lokinni fjallaði Eva Harðardóttir, aðjúnkt og doktorsnemi, og aðalfyrirlesari Skólamálaþings, um rannsókn sína þar sem hún spyr með hvaða hætti borgaravitund og inngilding í tengslum við menningarlegan margbreytileika birtist á íslenskum menntavettvangi.
Hún sagði mikilvægt að nálgast hnattræna borgaravitund í skólastarfi á gagnrýninn hátt; með gagnrýnu læsi á heiminn og sögulegu og menningarlegu samhengi. Mikilvægt væri fyrir kennara að spyrja spurninga sem draga fram ólík sjónarhorn og reynslu. Þannig sé hægt að sporna við valda-ójafnvægi í beitingu hnattrænnar borgaravitundar.
Eva sagði hugmyndir verkefnisins ríma vel við hugmyndir heimspekingsins Hönnuh Arendt um menntun. Samkvæmt Arendt er markmið menntunar að varðveita og endurskapa heiminn. Menntun er ekki undirbúningur fyrir fastmótaða framtíð heldur opið ferli sem felur í sér möguleika á betri framtíð á grunni umbreytandi hugmynda „hinna ungu og nýju“. Vonin um betri heim liggi fyrst og fremst í þeim umbreytandi hugmyndum sem verða til inni í skólanum. Skólinn geti verið sá öruggi og inngildandi staður þar sem „hin ungu og nýju“, í þessu tilfelli, nemendur af erlendum uppruna, finni sig aftur heima eftir að hafa þurft að yfirgefa heimili sitt og land og allan kunnugleika.

Skólinn getur verið sá öruggi og inngildandi staður þar sem „hin ungu og nýju“ finna sig aftur heima
Rannsókn Evu leiddi í ljós að kennarar sýna almennt mikinn skilning og samhyggð gagnvart nemendum af erlendum uppruna og leggja sig fram við að aðstoða nemendur, ekki bara námslega heldur einnig félagslega. Þó greinir Eva ofuráherslu á íslenskt tungumál og á jafnrétti umfram jöfnuð. Einsleitar áherslur á íslensku sem viðmið og forsenda fyrir þátttöku, dragi úr tækifærum til samskipta á grunni fjölbreyttrar þekkingar, reynslu og hugmynda. Þá verði hlutverk menntunar fyrst og fremst tæknilegt eða aðferðarfræðilegt, frekar en þekkingarmiðað. Þá lúti lýðræðislegar hugsjónir um þátttöku og inngildingu á grunni fjölbreytileika lægra haldi fyrir áherslum á samlögun og samkeppni.
Í ljós kom að þrátt fyrir virka þátttöku foreldra barna af erlendum uppruna í skólastarfi og námi barna þeirra upplifi þau sig öll útilokuð innan skólasamfélagsins, óháð breytum á borð við uppruna, menntun, stöðu og tungumálafærni. Ytri og kerfislæg útilokun grafi undan lýðræði og inngildingu á grunni menningarlegs margbreytileika og skapi ójafnt álag á skóla og kennara sem sinna fjölbreyttum nemendahópi.
Aukin samkennd með sögum og söng
Sigurbjört Kristjánsdóttir, deildarstjóri í leikskólanum Holti í Reykjanesbæ, fjallaði í kjölfarið um verkefni allra ellefu leikskóla Reykjanesbæjar og bókasafnsins: Leikgleði í gegnum sögur og söng. María Petrína Berg, skólastjóri Holts, ætlaði upphaflega að kynna verkefnið ásamt Sigurbjörtu, en forfallaðist vegna veikinda.
Sigurbjört útskýrði að markmið verkefnisins væri að „styrkja hugtakaskilning, orðaforða, hlustunarskilning og frásagnarhæfni leikskólabarna í Reykjanesbæ með málörvandi aðferðum sem byggja á leik, söng og virkni." Þá væru aðferðirnar jafnframt til þess fallnar að auka samkennd og styrkja félagstengsl milli barna. „Þannig er stuðlað að jafnvægi, öryggi, sjálfstrausti, tjáningarfærni og almennt andlegri farsæld þeirra, enda gefur augaleið að barn sem á auðvelt með að skilja aðra, getur og þorir að tjá sig og líður betur en barni sem á í erfiðleikum með það.“
Um þrjátíu prósent barna í leikskólum Reykjanesbæjar eru af erlendum uppruna og því er sérstök ástæða til að leggja áherslu á málörvun til að fyrirbyggja skerta framtíðarmöguleika eða jafnvel félagslega jaðarsetningu síðar á lífsleiðinni, útskýrði Sigurbjört.
Sigurbjört Kristjánsdóttir, deildarstjóri í leikskólanum Holti í Reykjanesbæ
Niðurstöður nýlegra íslenskra rannsókna bendi til að leikskólabörn með annað móðurmál en íslensku nái almennt ekki góðum tökum á málinu og hafi oft lítinn og einhæfan orðaforða. „Þetta er vandamál sem best er að bregðast við sem fyrst á skólagöngunni“, segir Sigurbjört, „þar sem það verður erfiðara við að eiga eftir því sem á líður. Aðferðirnar sem beitt er í verkefninu gagnast vel í þessu samhengi. Þær eru þó ekki sérsniðnar fyrir þennan hóp heldur er þeim ætlað að stuðla að aukinni málfærni og tilfinningalegri farsæld allra barna, óháð því hvort þau séu fjöltyngd eða ekki."
Leikskólarnir og bókasafnið fengu í vor styrk úr Sprotasjóð til að vinna að verkefninu sem Ólöf Kristín Guðmundsdóttir kennsluráðgjafi á Menntasviði Reykjanesbæjar stjórnar. Birte Harksen leikskólakennari, sem hefur unnið með málörvandi aðferðir til margra ára, er sérfræðingur verkefnisins.
Ný nálgun á ÍSAT-kennslu á Akureyri
Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir, verkefnastjóri ÍSAT í Síðuskóla, fór því næst yfir ÍSAT nemendur í grunnskólum Akureyrar. ÍSAT stendur fyrir íslensku sem annað tungumál. Ákveðið var að nálgast ÍSAT-kennslu með nýjum hætti í Síðuskóla skólaárið 2021-2022. Til dæmis var afráðið að hafa teymið fámennt; einn ráðgjafa, tvo kennara sem kenna öllum hópnum og einn kennara sem hefur yfirumsjón með öllum nemendunum og er í tengslum við foreldra þeirra. Þetta fyrirkomulag hefur reynst vera betra fyrir umsjónarkennara sem og foreldra barnanna. Þá hefur allt efni sem ætlað er foreldrum verið þýtt sem greiðir fyrir samskiptum og þátttöku foreldra í skólastarfi.
Með því að leggja sænska stöðuprófið fyrir nemendur í fyrstu kennsluviku á þeirra tungumáli í öllum helstu fögum hefur reynst auðveldara að staðsetja nemendurna sem þýðir að öll kennsla verður markvissari og námsmatið betra. Sigrún Helga gagnrýndi mikinn drátt á námsefni fyrir þennan hóp nemenda og kallaði eftir því hið snarasta.
Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir, verkefnastjóri ÍSAT í Síðuskóla
Er pláss fyrir mig í skólanum?
Jóna Dís Bragadóttir, skólastjóri Tæknimenntaskólans og fulltrúi framhaldsskólastigsins, fjallaði um nám fólks af erlendum uppruna í Tæknimenntaskólanum undir heitinu „Er pláss fyrir mig í skólanum?“, en Tæknimenntaskólinn býður upp á íslenskubraut fyrir útlendinga.
Nú, á haustönn 2023 eru um 150 nemendur á brautinni og rúmlega 45 þjóðerni. Þessir nemendur hafa komið til landsins á mjög ólíkum forsendum, benti Jóna Dís á, eru flóttamenn, hælisleitendur, fylgdarlaus börn, eða með foreldrum hér á landi vegna vinnu, og eru með mjög ólíkt bakland.
Framboðið annar þó engan vegin eftirspurn, benti Jóna Dís á, og biðin eftir að komast að getur verið löng. „Ástandið er hrikalegt hjá þessum hópi, sem í raun hefur ekkert annað að hverfa. Það er ekkert sem bíður þeirra. Þetta eru nemendur sem tala enga íslensku í flestum tilfellum og hafa litla skólagöngu að baki. Við erum nánast eina úrræðið fyrir þau.“
Það eru þá fleiri hindranir við að komast að í námið, en oft þurfa einstaklingar aðstoð við að sækja um og við innskráningu og sum hver eru ekki með kennitölu sem flækir málið.
Námstíminn er 2-4 ár. Við lok náms eru svo fjölbreyttar leiðir í boði, ýmist til framhaldsnáms, en hægt er að taka þrjár annir til viðbótar og útskrifast með stúdentspróf, eða nemendur geta fært sig á aðra braut innan Tækniskólans. Fjöldi nemenda hefur nýtt sér þau úrræði og sögur af velgengni nemenda eru margar, eins og kom í ljós í erindi Jónu Dísar.

Markmiðið verður að vera að börn af erlendum uppruna sjái tilgang í því að læra málið
Ólst upp við tvo menningarheima
Isabel Alejandra Díaz, stjórnmálafræðingur, verkefnisstjóri hjá HÍ og ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, var síðasti ræðumaður þingsins og sagði frá reynslu sinni sem nemandi af erlendum uppruna á Íslandi.
Fjölskyldan, sem er frá El Salvador í Mið-Ameríku, fluttist til Ísafjarðar árið 2000. Spænska var því „heimatungumálið“, eins og Isabel útskýrði. Hún ólst því upp við tvo menningarheima, þar sem íslenskar hefðir og gildi voru ríkjandi.
Samkvæmt rannsókn Miðju máls og læsis er tími grunnskólabarns í íslensku málumhverfi um 21 prósent vökutímans. Isabel telur, að í hennar tilfelli, hafi þó yfir 70 prósent af hennar vökutíma verið varið í íslensku málumhverfi á grunnskólaárunum. Í skólanum, frístund og tómstundum og með íslenskri fjölskyldu sinni, „ömmu“ og „afa“, og frændsystkinum sínum, sem áttu íslenska móður. „Það hafði áhrif á að svona vel tókst til,“ telur hún.

Skólinn er ein helsta félagslega formgerðin sem hefur bein áhrif og er börnum og ungmennum mótandi
„Markmiðið verður að vera að börn af erlendum uppruna sjái tilgang í því að læra málið,“ segir Isabel. Þannig fái fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn að blómstra.
Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, sleit svo þingi með þessum orðum: „Ég vona að þið farið heim fróðari eftir daginn og að erindi dagsins hafi kveikt í ykkur eldmóð um að halda áfram góðu starfi og gera enn betur í því mikilvæga verkefni að taka sem best á móti nemendum af erlendum uppruna.“
Hér er hægt að horfa á upptöku frá Skólamálaþingi KÍ 2023.