Stefna nýrrar umhverfisnefndar sett

Málefnastarf var á fullri ferð á öðrum degi þings KÍ og funduðu nefndir víða á Grand Hótel Reykjavík.
Ellefu málefnanefndir tóku til starfa á þingi KÍ í gærmorgun og unnu langt fram eftir degi, og sumar fram á kvöld. Nefndirnar eru allsherjarnefnd, fjárhagsnefnd, fræðslu- og félagsmálanefnd, jafnréttisnefnd, launa- og kjaranefnd, laganefnd, orlofs- og ferðanefnd, skólamálanefnd, útgáfunefnd og umhverfisefnd, vinnuumhverfisnefnd.
Tíu nefndanna hafa starfað á undangengnum þingum en umhverfisnefnd er ný af nálinni og hélt sinn fyrsta fund í sögu Kennarasambandsins. Tilurð umhverfisnefndar má rekja til aukaþings KÍ sem fram fór í tvennu lagi; á haustdögum 2020 og að vori 2021. Aukaþingið samþykkti stofnun nefndarinnar með því fororði að hún hæfi formlega störf að loknu 8. þingi KÍ.
Í lögum KÍ segir að hlutverk umhverfisnefndarinnar sé að endurskoða og þróa stefnu KÍ í loftslags- og umhverfismálum. Þá er nefndinni gert að halda kolefnisbókhald KÍ, meta vistspor sambandsins og setja skýr og tímasett markmið í umhverfis- og loftslagsmálum. 7
Stjórn KÍ mun skipa þrjá til fimm fulltrúa í umhverfisnefnd fyrir kjörtímabilið 2022-2026.
Þingið í dag
Umræður og atkvæðagreiðslur um tillögur nefnda hefjast fyrir hádegi í dag. Þingað verður fram eftir degi.