Starfsumhverfi skólanna verður að bæta

Fréttir|23. maí 2018

Nú líður að lokum skólaársins og styttist í skólaslit. Þeim fylgir alltaf ákveðin tilhlökkun í skólastarfi. Þá er ákveðnum áfanga náð um leið og hugsun margra og v erkefni eru farin að snúast um skipulag næsta skólaárs. Svona er starf skólastjórnenda fjölbreytt og krefjandi, alltaf nýjar áskoranir.

Á þessu vori bregður svo við að skólastjórnendur eru farnir að finna áþreifanlega fyrir þeirri vöntun á kennurum með leyfisbréf sem hefur verið fyrirséð um nokkurt skeið og áhyggjuefni hvernig manna á suma skóla á komandi hausti. Þetta á ekki síður við um lausar stöður stjórnenda sem freista ekki reyndra kennara í dag, bæði vegna launa og starfsumhverfis stjórnenda. Þá er það mjög alvarlegt mál að dæmi eru um stjórnendur sem ákveðið hafa að snúa aftur til kennslu eða jafnvel hætta af sömu ástæðum.

Við heyrum oftar en ekki ráðamenn þjóðarinnar vísa til mikilvægis góðrar menntunar til handa æsku landsins. Æskunni tilheyra einstaklingar sem munu leiða okkur inn í nýja tíma, munu þurfa að takast á við áður óþekkt verkefni á öðrum forsendum en áður hefur þekkst þar sem fjölbreytni í vinnubrögðum, samvinna og margþætt hæfni verður lykilatriði. Þá heyrum við hina sömu segja að vegna þessa, þurfi skólastarf í dag að mótast af fjölbreyttum kennsluháttum, auknum sveigjanleika, meiri teymisvinnu en um leið aukinni einstaklingsmiðun þar sem hver og einn nemandi fái tækifæri til að hámarka hæfni sína og árangur.

Þarna virðast alls ekki fara saman orð og athafnir þegar sá raunveruleiki blasir við sem hér áður var nefndur. Almennur kennaraskortur, minni áhugi en áður á stjórnendastöðum við grunnskóla og sá raunveruleiki að skólastjórnendur haldist ekki í starfi vegna starfsumhverfis og launa. Skólastjórnendur sem í raun eiga að leiða og bera ábyrgð á stefnumótun og faglegu starfi grunnskóla í landinu. Við verðum að gera þá kröfu til stjórnvalda, ríkis og sveitarfélaga, að búa þannig um hnútana að umgjörðin og grunnurinn að því sem til er ætlast sé þannig að sú niðurstaða sem menn vænta sé möguleg. Svo er ekki í dag.

Starfsumhverfi skólastjórnenda í grunnskólum landsins er í dag að mörgu leyti óviðunandi. Langvarandi álag vegna skorts á aukinni stjórnun, margvíslegar auknar kröfur vegna nýrra laga og reglugerða, aukin krafa um stefnumótun vegna nýrra áherslna í skólastarfi, rekstrar- og fjármálaleg umsýsla og mannauðsmál eru dæmi um það sem brennur á stjórnendum í dag. Á sama tíma hefur tími stjórnenda til faglegrar forystu í skólastarfi farið minnkandi vegna áðurnefndra verkefna. Starfsumhverfi skólastjórnenda þarf að endurskoða með það að leiðarljósi að stjórnunarumhverfi skólanna verði sambærilegt við þau fyrirtæki, þar sem stjórnendum eru sköpuð tækifæri til að sinna faglegri forystu, mannauðsmálum, rekstri- og fjárhagslegri ábyrgð og daglegum rekstri af fagmennsku.

Ljóst er að flestir skólastjórnendur grunnskóla hafa setið eftir í launaþróun, bæði þegar horft er til launa innan grunnskólans og ekki síður þegar horft er til samanburðar við sambærilega stjórnendur hjá ríki og á almennum markaði. Það er örugglega engin ein skýring á því hvers vegna svo er komið en gera verður ráð fyrir því að það sé vilji stjórnvalda að leiðrétta þessa stöðu. Ef orð stjórnvalda um mikilvægi góðrar menntunar og öflugs skólastarfs til framtíðar eiga að vera trúverðug geta stjórnvöld tæplega á sama tíma horft á stjórnendur í fræðslustarfsemi sem lægst launuðu stjórnendur landsins.

Formaður félagsins hefur farið til fundar við flest svæðafélög á síðustu vikum og mánuðum þar sem töluverðar umræður hafa verið um stöðu mála og hugsanlegar leiðir til úrbóta. Þá var á dögunum fundur með fulltrúum samrekinna skóla þar sem ýmislegt áhugavert kom fram um stöðu stjórnenda í samreknum skólum landsins.

Þann 14. júní, mun kjararáð félagsins funda með stjórn þar sem farið verður yfir kjaralega stöðu félagsins og fyrstu skref stigin að mótun kröfugerðar félagsins. Markmiðið er að á námstefnu félagsins í Reykjanesbæ í október verði farið ítarlega yfir stöðuna.

Félagsmenn eru hvattir til að koma hugmyndum sínum á framfæri við undirritaðan enda mikilvægt að sem flestir félagsmenn komi með einum eða öðrum hætti að stefnumótun félagsins í kjara- og réttindamálum.