Starfsþróunarvegabréf eru spennandi nýjung

Ný rafræn vegabréf á Mínum síðum eru frábær leið til að halda utan um og kortleggja starfsþróun.
Kennarasambandið setti nýverið Starfsþróunarvegabréf í loftið. Um er að ræða rafræna viðbót á Mínum síðum sem félagsfólk í KÍ þekkir vel. Starfsþróunarvegabréfinu er ætlað að gera félagsfólki auðvelt að halda utan um starfsþróun, hvort sem um er að ræða einingabært nám eða annars konar starfsþróun. Þannig fær félagsfólk góða yfirsýn yfir nám, námskeið, ráðstefnur, lestur, vettvangsheimsóknir og svo framvegis.
Starfsþróunarvegabréfið er afar þægilegt í notkun. Fljótlegt er að skrá þau atriði sem skipta máli og þá er hægt að geyma skjöl á svæðinu og kalla fram yfirlit yfir starfsþróun viðkomandi. Mikilvægur þáttur starfsþróunarvegabréfisins er skráning hæfniþátta samkvæmt reglugerð 1355/2022 frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Þar er byggt á fjórum meginsviðum hæfnirammans; uppeldis- og kennslufræði, námi og kennslu, samvinnu, samskiptum og starfsþróun og íslensku máli. Kennari getur þá skoðað hverju hann hefur bætt við sig og hvar vantar upp á og tengt við hæfnirammana og kortlagt feril sinn.
Auk þess er rými til ígrundunar ef fólk kýs svo, hægt er að skrá hugleiðingar að loknu námi eða námskeiði og gefa eigið mat á gagnsemi námsins.
Skráning á forsendum kennara
Starfsþróunarvegabréf eiga rætur sínar að rekja til Skotlands og öflugrar starfsemi kennararáðs sem hefur starfað allt frá árinu 1967.
Starfsþróunarvegabréfin voru þróuð sem rafræn vefsvæði eða verkfæri fyrir kennara til að styðja við starfsþróun sína. Seinna hafa þau verið notuð í fleiri löndum, t.a.m. Englandi, Írlandi, Wales og Ástralíu. Bréfin voru þróuð með það að markmiði að bæta og þróa skólafólk í starfi og draga athygli að nauðsyn þess að halda sér við í starfi.
Starfsþróunarskráin er á forsendum kennara og trúnaðarmál hans sem notar hana á sinn hátt og hún fylgir honum eins lengi og hann óskar. Sarfsþróunarvegabréfin eru tengd hæfniviðmiðum og framhaldsmenntun. Kennari getur þá skoðað hverju hann hefur bætt við sig og hvar vantar upp á og tengt við hæfnirammana og kortlagt feril sinn.
Skoskir skólastjórnendur telja starfsþróunarvegabréf bæta skilning almennings á mikilvægu framlagi skólafólks til menntunar, viðhalda trausti almennings til kennara og skóla og stuðla að faglegri þróun, faglegri meðvitund skólafólks og gæðum menntunar í skólum.
Félagar í KÍ hvattir til að stofna vegabréf
Kennarasambandið hefur unnið að gerð starfsþróunarvegabréfsins síðustu ár en samþykkt var á 8. þingi KÍ, árið 2022, að setja skráningu af þessu tagi á laggirnar. Vegabréfið var sett í loftið fyrir skemmstu og þegar hefur fjöldi félaga skráð sig til leiks.
Rafrænt umhverfi vegabréfsins er, sem fyrr segir, afar notendavænt og hvetur KÍ alla félaga til að skoða þennan nýja möguleika til að halda utan um starfsþróun.