Starfsþróunardagur framhaldsskólanna

Fréttir|1. mars 2024

Þann 1. mars var haldinn starfsþróunardagur framhaldsskólanna. Markmiðið er að kennarar hittist, beri saman bækur sínar og læri hvert af öðru.

Raungreinakennarar hittust í FÁ og var dagskráin fjölbreytt. Aðalfyrirlesarar voru frá SamSTEM hópnum sem kynntu niðurstöður sínar. Líflegar umræður sköpuðust í kjölfarið og augljóst að umræðuefnið vekur upp spurningar varðandi nám á náttúrufræðibraut. Eftir hádegi var hægt að velja á milli fjögurra málstofa:

    • Sigurður E. Vilhelmsson (Kvennó) og Andri Ingvason (FÁ) fjölluðu um gervigreind í skólastarfi.
    • Jan Kehler (Lundbeck Pharma) fjallaði um Drughunters sem er verkefni í tengslum við atvinnulífið og Ásdís Ingólfsdóttir (Kvennó) sagði frá ráðstefnunni Science on Stage.
    • Sigríður Gísladóttir (MÍ) sagði frá þverfaglegu verkefni varðandi sólarsellur og orkuframleiðslu og Sigurlaug Arnardóttir (Landvernd) og Katrín Magnúsdóttir (MS) fjölluðu um valdeflingu nemenda (grænfáninn).
    • SamSTEM hópurinn leiddi umræður um verklega kennslu.

Í lokin voru umræðutímar meðal faggreinakennara og komu kennarar úr HÍ sem tóku þátt í umræðunum.