Starfsemi KÍ skert vegna námsferðar
Fréttir|21. maí 2022

Félagsmönnum er bent á vef KÍ, www.ki.is þar sem hægt er að leita upplýsinga.
Starfsfólk Kennarasambandsins verður í námsferð dagana 23. til 27. maí og verður starfsemin ekki á fullu vélarafli á meðan á ferðinni stendur.
Vakt verður hjá Orlofssjóði mánudag, þriðjudag, miðvikudag og föstudag í næstu viku. Engin vakt verður á fimmtudeginum, uppstigningardegi.
Félagsmenn sem dvelja í orlofshúsum eru beðnir að hafa samband við umsjónarmenn ef eitthvað kemur upp á – eða senda tölvupóst á orlof@ki.is.
Félagsmönnum er bent á vef KÍ, www.ki.is, til að afla upplýsinga og senda tölvupóst eða ábendingu á vefnum ef brýna nauðsyn ber til.
Skrifstofan verður opin með hefðbundnum hætti mánudaginn 30. maí.