Starfs- og skólaþróun rædd á ráðstefnu FF

Fulltrúar skólaþróunarteyma framhaldsskólanna sátu ráðstefnu Félags framhaldsskólakennara á föstudag. Starfs- og skólaþróun var í brennidepli en auk þess var rætt um gervigreind og í lokin var efnt til pallborðsumræðna.
Ráðstefna Félags framhaldsskólakennara um starfsþróun og skólaþróunarteymi fór fram á Hilton Nordica á föstudag. Ráðstefnan var vel sótt og þótti takast vel.
Til ráðstefnunnar var boðið fulltrúum í nýstofnuðum skólaþróunarteymum framhaldsskólanna. Í nýgerðum kjarasamningum FF og FS við ríkið í lok febrúar voru starfs- og skólaþróun í brennidepli og í kjölfarið voru mynduð sérstök skólaþróunarteymi í öllum framhaldsskólum.
Skólaþróunarteymin hafa þau verkefni að greina þarfir skólasamfélagsins, móta stefnu í samvinnu við kennarafund og gera starfsþróunaráætlun til lengri tíma. Einnig sjá teymin um að skipuleggja fyrirkomulag starfsþróunar innan starfstímans á hverjum stað.
Fulltrúar félagsins í skólaþróunarteymunum eru alls rétt um sjötíu talsins og mættu næstum því allir á viðburðinn.
Í upphafi ráðstefnunnar fjölluðu formaður FF, Guðjón Hreinn Hauksson, og formaður skólamálanefndar, Simon Cramer Larsen, um aðdragandann að skólaþróunarteymunum, um sýn Félags framhaldsskólakennara á þetta mikilvæga verkefni og hvernig félagið ætlar sér að styðja við vinnuna í teymunum. Í framhaldinu fóru fram líflegar og gagnlegar umræður.
Gervigreind og pallborð
Ragnhildur Vigfúsdóttir, teymismarkþjálfi hélt erindi um sterk teymi þar sem fulltrúar teymanna fengu að spreyta sig á nokkrum verkefnum. Hjörvar Ingi Haraldsson og Sigurður Fjalar Jónsson héldu einnig erindi um mjög aðkallandi málefni sem steðjar nú að öllum kennurum og öllu skólastarfi, sem sagt gervigreind, og spreyttu teymin sig á því verkefni að velta fyrir sér hvernig skólaþróunarteymin gætu nálgast þá áskorun á næstu misserum.
Í lokin fóru fram pallborðsumræður þar sem mikilvægi öflugrar starfsþróunar á framhaldsskólastiginu var rætt og hvernig hægt er að styðja við hana úr mismunandi áttum. Guðjón og Simon voru fulltrúar FF í pallborðinu en gestir félagsins voru eftirfarandi:
- Anton Már Gylfason, formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum
- Jenný Gunnbjörnsdóttir, sérfræðingur hjá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri
- Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
- Magnús Ingvarsson, skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla og fulltrúi Skólameistarafélags Íslands
- Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
Þess má geta að fulltrúi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu ætlaði að taka þátt í pallborðinu en forfallaðist rétt fyrir viðburðinn.