Starf fulltrúa Orlofssjóðs laust til umsóknar

Starfið er fjölbreytt og felur í sér mikilvægt hlutverk við að tryggja faglega og trausta þjónustu við félagsfólk KÍ.
Kennarasamband Íslands auglýsir laust til umsóknar 100% starf fulltrúa í teymi Orlofssjóðs á skrifstofu sambandsins. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að sinna upplýsingagjöf og þjónustu til félagsfólks ásamt öðrum hefðbundnum skrifstofustörfum.
Starfið er fjölbreytt og felur í sér mikilvægt hlutverk við að tryggja faglega og trausta þjónustu við félagsfólk KÍ. Mikilvægt er að viðkomandi hafi mjög góða samskiptahæfni, leggi metnað í að veita góða þjónustu, geti unnið sjálfstætt og í teymi, sýni frumkvæði í starfi og hafi ríkan vilja til að styðja við starfsemi og markmið KÍ.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Upplýsingagjöf og afgreiðsla erinda vegna Orlofssjóðs KÍ.
- Þjónusta í gegnum síma, afgeiðsla fyrirspurna og svörun tölvupósta frá félagsfólki.
- Uppgjör og tilfallandi bókhaldstengd verkefni.
- Utanumhald og uppfærsla bókunarkerfis sjóðsins í samvinnu við framkvæmdastjóra orlofssjóðs.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verkefnastjórnunar, ferðaþjónustu eða annarrar þjónustu.
- Jákvæðni og rík þjónustulund.
- Ánægja af samskiptum við fólk.
- Reynsla af uppgjörum og að vinna með tölur.
- Hæfni til að starfa sjálfstætt og í teymi.
- Metnaður og sveigjanleiki í starfi.
- Mjög góð hæfni í íslensku og ensku, jafnt í töluðu og rituðu máli.
Um er að ræða 100% starf. Umsóknarfrestur er til og með 7. júní næstkomandi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags atvinnurekanda og Visku stéttarfélags.
Linda Björk Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Orlofssjóðs linda@ki.is veitir nánari upplýsingar.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla og þekking.
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsóknir skulu berast í gegnum Alfreð og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.