Stafræn áreitni - allra vandi

Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur KÍ í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum, fjallar um stafræna áreitni og viðbrögð við henni.
Stafræn áreitni er yfirheiti yfir það þegar einhver nýtir stafræna miðla eins og tölvupóst, samfélagsmiðla, blogg og heimasíður til að áreita, hóta eða hræða einhvern. Stafræn áreitni finnst bæði meðal starfsfólks vinnustaða og milli starfsfólks og nemenda og starfsfólks og forsjáraðila. Í öllum tilfellum verða stjórnendur að uppræta áreitnina og stíga ákveðið inn í, rétt eins og kveðið er á um í reglugerð 1009 um viðbrögð við einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi frá 2015.
Hvað er stafræn áreitni?
Því miður eru fleiri birtingarmyndir og fleiri þolendur stafrænnar áreitni en almenningur gerir sér grein fyrir. Stafrænt einelti og kynferðisofbeldi er þekkt meðal nemenda í framhaldsskólum, í efri bekkjum grunnskóla og jafnvel hjá yngri nemendum, en kennarar verða fyrir annars konar stafrænum árásum. Um er að ræða umfjallanir sem smána, draga úr faglegu framlagi og gera lítið úr sérfræðiþekkingu kennara.
Birtingarmyndir eru margs konar en einkum er um að ræða upptökur og myndbirtingar nemenda af kennurum á samfélagsmiðlum, umræðu á samfélagsmiðlum um nafngreinda kennara í lokuðum hópum, myndbönd útbúin af nemendum í þeim tilgangi að lítillækka kennara og umfjallanir, endurritanir eða samhengislausar glærubirtingar úr kennslustundum á samfélags- og/eða fréttamiðlum. Hafa skal í huga að kennsluaðferðir, kennslustundir og glærusýningar ber að skoða heildrænt.
Einkenni stafrænnar áreitni
Kennarar sem í þessu lenda eru berskjaldaðir og varnarlausir og er árás sem þessi alltaf óvægin, án ígrundunar og flutningsmanni sínum aldrei til sóma. Mikilvægt er að stjórnandi dragi upplifun einstaklings aldrei í efa en andlegir áverkar eins og ótti, streita, kvíði, aukin þreyta, einbeitingarskortur og svefnerfiðleikar geta orðið svo erfiðir að fjarvera eykst. Einnig geta komið fram líkamleg einkenni en í alvarlegustu tilvikum má greina þunglyndi, áfallastreituröskun, kulnun og jafnvel hjarta- og æðasjúkdóma. Kennarar sem verða fyrir stafrænni árás eru jafn viðkvæmir fyrir ofbeldinu og í sömu heilsufarslegu hættu og fólk sem verður fyrir einelti, áreitni eða ofbeldi í raunheimi.
Er stafræn áreitni algeng?
Rannsóknir á Norðurlöndunum sýna að stafræn áreitni gagnvart kennurum fer vaxandi og eru vísbendingar um að slíkt sé einnig að gerast hér á landi. Á Íslandi hefur ekki farið fram rannsókn á umfangi stafrænnar áreitni en miðað við umræðu meðal kennara og stjórnenda skóla má ætla að hún sé algeng. Erfitt getur þó reynst að meta umfang stafrænnar áreitni m.a. vegna þess að almenn umræða hefur verið lítil, engin opinber rannsókn á umfangi hefur farið fram og ekki er viðtekin venja að skrá og tilkynna slíkt hér á landi. Danskar rannsóknir sýna að 5% alls félagsfólks dönsku kennarasamtakanna, Danmark Lærerforening, hefur lent í stafrænni áreitni, sérstaklega í sérskólum og frá eldri nemendum en líka frá öðrum kennurum og forsjáraðilum nemenda.

Kennarar sem verða fyrir stafrænni árás eru jafn viðkvæmir fyrir ofbeldinu og í sömu heilsufarslegu hættu og fólk sem verður fyrir einelti, áreitni eða ofbeldi í raunheimi
Vinnustaðavandi og viðbrögð
Bregðast þarf við allri stafrænni áreitni og ber vinnustaðurinn allur ábyrgð á því. Þegar stafræn áreitni tengist vinnustað er það orðið að vinnuumhverfisvanda sem vinnustaður verður að taka á í sameiningu, en best er að hefja vinnuna strax. Skilningur fólks á stafrænni áreitni er ólíkur og þess vegna er nauðsynlegt að vinnustaðir taki sig saman og skilgreini hver áhættan er og hvenær og hverjum eigi að tilkynna og útbúi gátlista um hvernig megi þekkja áreitnina, bregðast við henni og koma í veg fyrir hana. Sameiginleg ákvörðun okkar verður að vera sú að við leggjum fólk ekki í einelti og við áreitum það ekki, hvorki í raunheimi né í stafrænum heimi.
Mikilvægt er að hver sá sem lendir í stafrænni áreitni standi ekki einn, heldur sé litið á það sem sameiginlegan vanda starfsfólks og alls skólans. Stjórnendur verða alltaf að trúa upplifun og líðan starfsmanns, hvort sem hann er hræddur, óöruggur eða upplifir að brotið hafi verið á sér. Ræða verður við hlutaðeigandi, þolanda á að bjóða sálræna skyndihjálp og handleiðslu og geranda eða gerendum þarf að gera ljóst að stafræn áreitni er ekki liðin og að hún er ólögleg rétt eins og einelti eða ofbeldi. Funda þarf með gerendum og ræða það sem fram hefur farið, benda á reglugerð og samskiptareglur skólans.
Atvikaskráning, tilkynningaskylda og vinnuslys
Samkvæmt vinnuverndarlögum er það á ábyrgð atvinnurekanda að halda skrá yfir öll vinnuslys og óhöpp og skal hann endurskoða áhættumatið þegar vinnuslys eða óhöpp verða eða hætta á heilsutjóni er meiri en áður var talið. Þá er atvinnurekanda einnig skylt að tilkynna vinnuslys til Vinnueftirlitsins ef starfsmaður er frá vinnu í einn eða fleiri daga, umfram þann dag sem slysið varð eða líkur eru á langvinnu eða varanlegu heilsutjóni.
Áhrif andlegs ofbeldis eru ekki eins sýnileg og líkamlegs, þess vegna er mikilvægt að skrá atvik samstundis og tilkynna til Vinnueftirlitsins svo skráning sé til staðar ef/þegar áhrifa fer að gæta síðar eða starfsmaður veikist. Vinnuslys er ekki skilgreint í vinnuverndarlögunum en með tilliti til skilgreiningar ESB og ILO telur Vinnueftirlitið að með vinnuslysi sé átt við slys sem verður vegna eða við vinnu og leiðir til andláts eða heilsutjóns; líkamlegs eða andlegs. Einnig þarf að hafa í huga að verði starfsmaður fyrir slysi á beinni leið í eða úr vinnu telst það vinnuslys.
Stafræn áreitni getur því talist til vinnuslyss sem er skráningarskylt og tilkynningarskylt til Vinnueftirlitsins, en meta þarf hvert tilvik fyrir sig.
Lög og reglugerðir segja að ...
KÍ leitaði til lögfræðings Vinnueftirlitsins og í svari hans kemur skýrt fram að skólastjórnendum beri skylda til að skilgreina til hvaða aðgerða skuli grípa ef upp kemur grunur um stafrænt einelti, áreitni eða ofbeldi. Reglugerð nr. 1009/2015, um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum (EKKO) kveður á um þau atriði sem fram skulu koma í áhættumati og í viðbragðsáætlun vegna einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Reglugerðin gerir ekki kröfur um ákveðið form og því þarf atvinnurekandi að grípa til aðgerða ef upp koma stafræn atvik.
Ennfremur er gerð krafa um skilgreind viðbrögð við kvörtunum eða ábendingum um stafrænt einelti, áreitni eða ofbeldi í samskiptum starfsfólks við einstakling eða einstaklinga utan vinnustaðar ef samskiptin eiga sér stað í tengslum við þá starfsemi sem fram fer á vinnustaðnum, s.s. af hálfu nemenda sbr. c. lið 2. mgr. 5. gr. Það er því á ábyrgð atvinnurekanda að skilgreina í sinni áætlun til hvaða aðgerða verði gripið ef upp kemur grunur um einelti, áreitni eða ofbeldi af hálfu þriðja aðila.
Efni um stafræna áreitni á vef KÍ
Á vef KÍ má finna drög að viðbragðsáætlun vegna stafrænnar áreitni og ofbeldis. Bygging viðbragðsáætlunarinnar er á sömu leið og annarra áætlana sem útbúnar hafa verið hjá KÍ. Upplýsingarnar eru að mestu fengnar frá Branche Fælleskab Arbejdmiljø, Velfærd og Offendlig administration en eru staðfærðar og lagaðar að íslenskum veruleika. Í áætluninni má finna nákvæmar upplýsingar og eyðublað sem nýta má við greiningu og skráningu atvika. Eins er þar að finna spurningar sem nýta má við þarfagreiningu og tillögur að áhættumati og forvörnum.
Að lokum má þar finna leiðarvísi að viðbragðsáætlun og sálrænni skyndihjálp. Við mælum með að fara markvisst í gegnum þessa viðbragðsáætlun með starfsmannahópnum, því þannig fæst besta myndin af þeirri hættu sem getur skapast vegna stafræns áreitis og ofbeldis. Frekari upplýsingar og fræðslu veitir sérfræðingur KÍ í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum.
Greinin birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.