Stækkaðu framtíðina

Fréttir|29. febrúar 2024

Stækkaðu framtíðina er verkefni fyrir alla grunn- og framhaldsskóla landsins og felst í því að sjálfboðaliðar af vinnumarkaði heimsækja kennslustundir til að lýsa starfi sínu, segja nemendum frá því hvernig nám þeirra hefur nýst og hver bakgrunnur þeirra er.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynntu í dag verkefnið Stækkaðu framtíðina. Verkefnið hefur það að markmiði að víkka sjóndeildarhring nemenda og gefa öllum ungmennum á Íslandi tækifæri til að eiga fjölbreyttar fyrirmyndir, eins og segir á vef Stjórnarráðsins. Er það gert með því að tengja alls konar fólk af vinnumarkaði við skólastofur landsins þar sem það segir nemendum frá starfi sínu og menntun.

Tilgangur verkefnisins er að opna augu barna og ungmenna fyrir þeim tækifærum sem framtíðin hefur upp á að bjóða og auka þannig áhuga þeirra á námi. Vonin er sú að verkefnið ýti undir að nemendur sjái tilgang með náminu. Stækkaðu framtíðina miðar að því að öll börn og ungmenni sjái þá möguleika sem þeim standa til boða, óháð bakgrunni eða búsetu, fái tækifæri til að kynnast ólíkum störfum og heyra sögur frá fólki af vinnumarkaðinum og upplifi aukinn áhuga á námi og tækifærum framtíðarinnar.

 

Áslaug Arna í pontu við kynningu verkefnisins. Mynd fengin af vef Stjórnarráðs Íslands. 

 

„Þegar börn og ungt fólk byrjar að horfa til framtíðar og sjá hana fyrir sér hafa þau gjarnan takmarkaða innsýn í þá breiðu flóru starfa sem í boði eru. Það er hagur okkar allra að börn geti fundið sig og mátað sig við sem flest, haft raunverulegt val um framtíðina og blómstrað á eigin forsendum. Mig langar því að hvetja sem allra flest til að taka þátt í þessu með okkur!“ sagði Ásmundur Einar við kynninguna í Rettarholtsskóla í dag.

Hér er hægt að lesa meira um verkefnið og hér er hægt að skoða vefsíðu þess.

Von á gagnagrunni fyrir kennara

Nú á vormánuðum verður verkefnið kynnt nánar í grunn- og framhaldsskólum landsins og netvettvangur þróaður sem mun gera kennurum og starfsfólki skólanna kleift að leita auðveldlega að sjálfboðaliðum eftir til dæmis starfsvettvangi, námi og staðsetningu.

Til að byrja með verður sjálfboðaliðum safnað saman í gagnagrunn, en stefnt er síðan að því að opna verkefnið og hefja heimsóknir í haust. Þá fá kennarar í grunn- og framhaldsskólum landsins fá aðgang að gagnagrunni verkefnisins til að finna réttu manneskjuna til að bjóða í sína kennslustund og stækka sjóndeildarhring nemenda sinna.

Ef þú eða þinn skóli hefur áhuga á að leggja hönd á plóg og taka þátt í að þróa verkefnið með okkur á næstu mánuðum endilega hafðu samband!

Auðvelt að taka þátt

Fólk á vinnumarkaði er hvatt til að taka þátt í verkefninu og þátttaka er einföld. Hægt er að skrá sig sem sjálfboðaliða á heimasíðu verkefnisins - stækkaðuframtíðina.is. Þar er hægt að velja hversu margar heimsóknir í skóla sjálfboðaliði hefur tök á - allt eftir tíma og áhuga. Ein heimsókn í kennslustund á ári er nóg til að vera með í að stækka framtíðina.

„Það þarf fjölbreyttan hóp fólks fyrir fjölbreyttan hóp nemenda og ekki er gerð krafa um að sjálfboðaliðar séu í stjórnendastöðu  á sínum vinnustað,“ segir á vef Stjórnarráðsins.