Staðgott nám í fjármálalæsi góður undirbúningur fyrir lífið

Fréttir|8. október 2015

Fjármálalæsi hefur verið valgrein í Menntaskólanum við Sund undanfarin misseri. Námskeiðið hefur notið vinsælda og segir Sigmar Þormar félagsfræðikennari framhaldsskólann vera síðasta tækifærið til að efla fjármálalæsi þorra þjóðarinnar.

„Fjármál eru í raun eins og hvert annað viðfangsefni innan félagsfræðinnar, eins og til dæmis kvenréttindi sem eru valgrein hér í MS. Sumum finnst fjármálalæsið flókið á meðan þetta rennur auðveldlega ofan í aðra. Það þarf að kynna fjármálin sem fræðilegt viðfangsefni á svipuðum grunni og aðrar námsgreinar innan framhaldsskólans. Framhaldsskólinn er síðasta tækifærið sem gefst til að ná til þorra þjóðarinnar – það gefst ekki tækifæri eftir að fólk er komið í háskóla og byrjað að sérhæfa sig,“ segir Sigmar Þormar, félagsfræðikennari í Menntaskólanum við Sund, en hann hefur borið hitann og þungann af kennslu í fjármálalæsi síðustu misseri.

Sigmar og Ingvar Freyr Ingvarsson hagfræðingur smíðuðu áfangann á haustdögum ársins 2011. Þeir leituðu í smiðju hagfræði- og viðskiptagreina varðandi hagnýtar upplýsingar um fjármálalæsi. Kveikjan að námskeiðinu var meðal annars skýrsla nefndar viðskiptaráðuneytis sem bar titilinn: Fjármálalæsi á Íslandi í kjölfar fjármálahrunsins á Íslandi árið 2008. Sigmar segir að í stuttu máli megi segja að niðurstöður skýrslunnar hafi verið á þá leið að þekking þjóðarinnar á fjármálum hafi ekki verið góð; fólk þekkti ekki almenn fjármálahugtök og virtist eiga í erfiðleikum með að glöggva sig á daglegum umræðum um efnahagsmál.
 

Heimspekileg viðfangsefni
Mikilvægt er að mati Sigmars að gera greinarmun á hugmyndum um fjármálalæsi annars vegar innan framhaldsskólanna og hins vegar innan grunnskólans. „Það eru alls kyns hlutir tengdir fjármálalæsi sem vert er að kynna börnum í grunnskólanum og ágætar kennslubækur hafa verið gefnar út sem henta krökkum í grunnskóla. Það gegnir öðru máli þegar í framhaldsskólann er komið – þá þarf að opna gáttirnar að heimi fræða og heimspeki. Það er á þeim forsendum sem við höfum viljað byggja upp námið í fjármálalæsi. Við höfum lagt áherslu á hugtökin frelsi og ábyrgð sem eru auðvitað heimspekileg viðfangsefni,“ segir Sigmar.

„Það hentar kannski ekki öllum að leggjast í Sören Kirkegaard og Friedrich Nietzcshe en krakkar í menntaskóla eiga að ráða við það. Við fjöllum til dæmis um hugmynd Kirkegaards um hið algjöra frelsi mannsins. Það er alltaf verið að berja inn hjá nemendum að þeir eigi að vera duglegir að læra, mæta í skólann og gera eins og foreldrar þeirra gerðu. Svo kemur Kirkegaard allt í einu og segir: Þið getið gert hvað sem þið viljið! Þetta tengi ég svo við fjármálin; nemendur verða þess áskynja að þeir mega gera hvað sem er í fjármálum en þeir læra líka að þeir bera ábyrgð á gjörðum sínum. Ábyrgðarhugtakið er mikilvægt og það má svo tengja við umræður um hrunið og hugmyndir margra Íslendinga um að bera enga ábyrgð þegar bankarnir fóru á hausinn,“ segir Sigmar.
 

Nútíminn er flókinn
Hann segir nauðsynlegt að gera námskeiðið þannig úr garði að það henti nemendum í framhaldsskólum, það sé verkefnamiðað og búi yfir dýpt. Nám í fjármálalæsi felur í sér fjölmarga þætti; farið er í hugmyndafræði, nemendum kennt að lesa í hagstærðir og það má tengja efnið við þjóðhagfræði og markaðsfræði. „Þegar nemendur hafa náð tökum á dýpri þáttum fjármálalífsins þá sjá þeir eigin fjárhag öðruvísi og eiga auðveldara með að skoða heimasíður bankanna með gagnrýnum augum og stjórna lífi sínu. Það er nú bara þannig að nútíminn er flókinn og fólk þarf að búa yfir góðri heildstæðri menntun, ekki bara í fjármálalæsi heldur öllum greinum.“

Sigmar og Ingvar Freyr hafa sett saman námsefni þar sem lögð er áhersla á fjármálalæsi sem fræðigrein þar sem nýjustu hugmyndir í hagfræði, félagsfræði og fjármálum eru nýttar. Til bókaskrifanna hlutu þeir Sigmar og Ingvar Freyr styrk frá Rannís og er bókin tilbúin í handriti. „Kennslubók af þessu tagi þarf að vera íslensk og marga hluti þarf að staðfæra. Við vörpum líka ljósi á efnahagshrunið hér á landi og hefur ýmsum bankamönnum þótt við helst til gagnrýnir á það sem gerðist – en gagnrýnin hugsun er viðtekin venja innan félagsfræðinnar og heimspekinnar.“

Hann segir það staðreynd að fjármálastofnanir hafi markvisst gert út á fáfræði almennings í aðdraganda hrunsins „Það má kannski segja að á sama tíma hafi verið gert út á veikt framhaldsskólakerfi, enda höfðu skólarnir verið fjársveltir um langt árabil. Launin voru skelfileg á árum áður og margir efnilegir kennarar sneru sér að öðru,“ segir Sigmar og bætir við að nýir kjarasamningar framhaldsskólakennara hafi falið í sér góðar kjarabætur. „Það verður vonandi til þess að starf framhaldsskólakennara verði eftirsóknarvert. Framhaldsskólakerfið er í raun ekki svo dýrt og við verðum að halda í góða kennara með því að hafa launin í lagi.“

Tími breytinga
Sigmar hefur verið félagsfræðikennari í Menntaskólanum við Sund í níu ár. Nemendurnir eru 740 en unnið hefur verið að stækkun skólans og stefnt er að því að þeir verði yfir 900. MS telst því til „stóru“ skólanna. Sigmar segir mikið álag á kennaraliði skólans um þessar mundir og ekki síst á námskrárstjóranum, Ágústi Ásgeirssyni. „Við erum að kenna fyrsta árinu eftir nýja „þriggja ára“ kerfinu en hinir eldri eru í gamla kerfinu. Ég hef þá trú að það felist mörg tækifæri í nýja kerfinu og sé ekki ástæðu til annars en að horfa jákvæðum augum til framtíðar. Við höfum tækifæri til að byggja upp nýjan og betri MS,“ segir Sigmar hann ætlar að setja fram tillögu að nýrri námsbraut á sviði viðskiptafræði, sem að sjálfsögðu mun fela í sér nám í fjármálalæsi.

„Það væri frábært ef fjármálalæsi yrði námsgrein sem byðist í öllum framhaldsskólum landsins. Við höfum sett þessa hugmynd á flot og við sjáum svo til hvort hún flýtur áfram eða sekkur til botns.“


Viðtalið við Sigmar Þormar birtist í Skólavörðunni, 5. tbl.
Hægt er að lesa Skólavörðuna í smáforriti sem
má nálgast í App Store og Google Play.
Einnig er þægilegt að lesa Skólavörðuna á netinu.