Staða samningaviðræðnanna

Fréttir|31. mars 2014

Samningaviðræður FF og FS við samninganefnd ríkisins vegna ríkisrekinna framhaldsskóla hafa staðið yfir í bráðum fjóra mánuði. Samningafundir eru orðnir 44 frá byrjun desember og samningavinna hefur staðið yfir samfellt alla sjö daga vikunnar í meira en mánuð. Það er von að fólk spyrji hvað valdi því að ekki hefur verið undirritaður kjarasamningur nú hálfum mánuði eftir að starfsemi þorra framhaldsskóla landsins stöðvaðist.

Elna Katrín Jónsdóttir, fulltrúi í samninganefnd FF, tók saman eftirfarandi upplýsingar um stöðu samningaviðræðnanna:

Vinna við kjarasamningsgerðina er mjög langt komin hvað varðar samningstilefni og megininntak þess kjarasamnings sem gera á. Helstu þættir hafa allir fengið ítarlega umræðu og langt er síðan ljóst varð að þeir yrðu þessir:

  • Launaleiðrétting, launaþróun og viðhald launastöðu félagsfólks okkar í framhaldsskólum út samningstímann.
  • Viðbrögð í kjarasamningi við fullri gildistöku nýrra framhaldsskólalaga og vinnumat kennarastarfsins. Í þeim hluta kjarasamningsins er jafnframt hugsað fyrir því að kjara- og samningsforsendur séu skapaðar til þess að mæta þeim aðstæðum að einstakir framhaldsskólar óski eftir og fái heimild til þess að stytta námstíma til lokaprófs úr framhaldsskóla.
  • Samningstími sem áformaður er til loka október 2016 en þó með þeirri sérstöðu að atkvæðagreiðsla fari fram um nýtt vinnumat á kennsluþætti snemma árs 2015 á grundvelli vinnu við frekari útfærslu þess sem ákveðin er með kjarasamningum.
  • Áherslur við samningaborðið á að strax verði ráðist í að rétta rekstur og fjárhag framhaldsskólanna af. Aðeins þannig verði þeir stakk búnir til þess að viðhalda árangri af væntanlegum kjarasamningi og eigi möguleika á endurreisa innra starf sitt. Það snertir svo aftur beint störf og kjör félagsfólks okkar og getur vakið stofnanasamninga aftur til lífsins.

En hver er þá samningsfyrirstaðan og hvers vegna er ekki búið að semja? Fyrir því eru þrjár ástæður helstar. Enn ber talsvert í milli samningsaðila um nauðsynlegar hækkanir launa til þess að launaleiðréttingu verði náð á samningstíma. Nokkuð ber í milli um samningsforsendur einkum aðferðafræði við launakannanir og mælingar á launaþróun. Síðast en ekki síst vantar enn dálítið upp á nauðsynlegan stuðning ráðherra mennta- og fjármála við samningagerðina.

Semsagt – það er enn brekka gagnvart viðsemjanda okkar en ekkert stendur á okkur að klára samning.