Staða Náttúruminjasafns óásættanleg

Fréttir|31. mars 2015

Samtök líffræðikennara lýsa yfir vonbrigðum með þá stöðu sem Náttúruminjasafn Íslands býr við í ályktun sem samþykkt var á nýlegum aðalfundi félagsins.

„Um áratuga skeið ríkti algjör óvissa um aðstöðu safnsins til sýningahalds og nýlega sagði hið opinbera upp skrifstofuaðstöðu safnsins. Ríkið hefur ekki lagt nægilegt fé til Náttúruminjasafnsins sem kemur í veg fyrir að safnið geti sinnt lögbundnum hlutverkum á sviði rannsókna, sýninga, fræðslu og upplýsingamiðlunar“ segir meðal annars í ályktunni. Ennfremur segir þar:

„Hérlendis hafa verið tækifæri til úrbóta á undanförnum árum, og þá ber hæst hugmynd um grunnsýningu um náttúru Íslands í Perlunni á Öskjuhlíð. Borgaryfirvöld hafa áhuga á verkefninu og fjárfestar eru reiðubúnir til þátttöku. Ríkið þarf eingöngu að axla ábyrgð sem því ber lögum samkvæmt og sýna vilja til samstarfs. Staðurinn er einstaklega heppilegur, í nálægð við hin höfuðsöfn þjóðarinnar, tvo sterka háskóla, ferðaþjónustu og fjölbreytta íslenska náttúru með stórbrotnu útsýni."

Ályktunina í heild má finna hér.