Sprotasjóður styrkir 26 verkefni

Fréttir|28. apríl 2020

Áherslusvið styrkveitinganna nú eru á verkefni sem hafa tengingu við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Tilkynnt hefur verið um úthlutun ársins 2020 og hljóta 26 verkefni styrki að þessu sinni. Heildarupphæð styrkjanna eru rúmlega 56 milljónir kr. Áherslusvið styrkveitinganna nú eru á verkefni sem hafa tengingu við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. 

Alls bárust 46 umsóknir um styrki úr sjóðnum þegar auglýst var fyrr í vetur og var heildarupphæð umsóknanna rúmar 155 milljónir kr. Verkefnin munu án efa efla skólastarf í landinu.

 

Listi yfir verkefnin sem hlutu styrk.