Spornum við streitu

„Streitueinkenni“ og „Spornum við streitu“ eru titlar tveggja nýrra fræðslumynda sem Félag grunnskólakennara hefur látið gera.
Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunarsviðs við Heilsustofnunina í Hveragerði, er fyrirlesari á báðum myndböndum. Í fyrra myndbandinu Streitueinkenni útskýrir Margrét hugtakið streitu frá ýmsum hliðum og í hinu síðara Spornum við streitu fjallar um hún um úrræði og meðferð við streitu.
Frásögn Margrétar er afar áhugaverð og áheyrileg, mikilvæg atriði eru sett fram á skýran og einfaldan hátt. Við mælum með áhorfi.
Mikilvægi raddarinnar
Fyrr á árinu gaf Félag grunnskólakennara út annað fróðlegt og áhugavert myndband. Þar fjallar um Þórey Sigþórsdóttir leikkona um eitt helsta atvinnutæki kennara, nefnilega röddina. Þórey ræðir mikilvægi þess að beita röddinni rétt og kennir ýmsar æfingar sem hjálpa þar til.
Röddin hefur þegar fengið mikið áhorf en þau sem hafa ekki horft eru eindregið hvött til þess. Röddin er svo mikilvæg.
Um útgáfu myndbandanna
Skólamálaráð Félags grunnskólakennara hefur haft veg og vanda af gerð myndbandanna og eru fleiri fræðslufyrirlestrar í bígerð. Viðfangsefni myndbandanna eru valin með að leiðarljósi að styðja við skólaþróun á fjölbreyttan hátt, bæta líðan kennara og þar með efla gæði skólastarfs.
Upptökur fóru fram í húsakynnum Kennarasambandsins við Borgartún. Upptökustjórn og eftirvinnslu annaðist Halldór Árni Sveinsson með aðstoð útgáfusviðs KÍ.