Spjaldtölvunotkun í Reykholtsskóla og stafrænir kennsluhættir

Ásta Kristjana Guðjónsdóttir, kennari í Reykholtsskóla, hefur lokið rannsókn á áhrifum spjaldtölva á kennsluhætti. Ásta hlaut styrk úr Rannsóknasjóði KÍ til að vinna verkefnið.
Tölvutækni hefur umbylt skólastarfi síðustu áratugi, og notkun spjaldtölva í kennslu hefur skapað nýjar leiðir til náms og kennslu. Í Reykholtsskóla var tekin upp stefna um notkun spjaldtölva árið 2014 með það að markmiði að jafna námsaðstæður nemenda og efla stafræna færni þeirra. Þessi grein byggir á rannsókn minni sem gerð var með styrk úr Rannsóknasjóði Kennarasambands Íslands og kannar hvernig innleiðing spjaldtölva hefur þróast og hvaða áhrif hún hefur haft á kennsluhætti og námsaðferðir nemenda.
Rannsóknin er starfendarannsókn þar sem ég er kennari við skólann og hafði áhuga á að skoða vinnu mína síðastliðinn áratug við innleiðingu spjaldtölva í skólann.
Starfendarannsókn er sérstök aðferð þar sem rannsakandinn er virkur þátttakandi í þeirri starfsemi sem rannsakað er með það að markmiði að bæta hana. Í þessari rannsókn var gagna aflað með könnunum meðal kennara og nemenda ásamt greiningu á skólanámskrá og öðrum skjölum skólans. Markmiðið var að kanna viðhorf kennara og nemenda til spjaldtölvunotkunar, meta áhrif hennar á kennsluhætti og skoða hvort og þá hvernig stafrænir kennsluhættir hafa þróast í skólanum.
Innleiðing spjaldtölva hófst í Reykholtsskóla árið 2014 með kaupum á nokkrum iPad mini spjaldtölvum. Á fyrstu árunum var notkun þeirra aðallega bundin við sérkennslu og kennslu á miðstigi. Árið 2015 fjölgaði spjaldtölvum í skólanum og kennarar fengu eigin spjaldtölvur til að hvetja til aukinnar notkunar á stafrænni tækni í kennslu. Með tímanum voru spjaldtölvur teknar upp í fleiri námsgreinum og árið 2019 var innleidd 1:1 spjaldtölvunotkun á unglingastigi það er hver nemandi fékk sína eigin spjaldtölvu. Haustið 2021 voru svo komnar spjaldtölvur 1:1 fyrir nemendur frá þriðja bekk og 1:2 í fyrsta og öðrum bekk.
Könnun á viðhorfum kennara leiddi í ljós að meirihluti þeirra taldi spjaldtölvur vera mikilvægt kennslutæki sem auðveldaði einstaklingsmiðað nám og stuðlaði að aukinni þátttöku nemenda. Þeir töldu þó mikilvægt að fá frekari endurmenntun til að nýta tæknina sem best. Kennarar óskuðu eftir námskeiðum og kynningum þar sem þeir gætu miðlað reynslu sinni og lært af öðrum.
Nemendur voru almennt jákvæðir gagnvart spjaldtölvum og töldu þær gagnlegar til að afla upplýsinga, vinna verkefni og bæta færni sína í ritvinnslu og tungumálum. Þeir notuðu spjaldtölvurnar daglega í námi, bæði til að hlusta á texta, skrifa ritgerðir og leita upplýsinga á netinu. Nemendur með dyslexíu töldu spjaldtölvurnar sérstaklega gagnlegar þar sem þær hjálpuðu þeim að komast framhjá hindrunum í lestri og ritun.
Rannsóknin sýndi að innleiðing spjaldtölva í Reykholtsskóla hefur haft jákvæð áhrif á stafræna kennsluhætti og notkun þeirra er mun meiri en kemur fram í skólanámskrá.
Spjaldtölvur hafa auðveldað einstaklingsmiðað nám og gert kennurum kleift að nýta fjölbreyttari kennsluaðferðir. Innleiðingin hefur reynst árangursrík og haft jákvæð áhrif á kennsluhætti og aukið fjölbreytni í vinnubrögðum nemenda. Til að viðhalda þessum árangri og bæta enn frekar þarf að leggja áherslu á áframhaldandi endurmenntun kennara og þróa skýra stefnu um stafræna kennsluhætti og stafræna borgaravitund.
Þannig má tryggja að spjaldtölvur og önnur stafræn tækni nýtist sem best til að efla námsárangur og jafna námsaðstæður allra nemenda.
Spjaldtölvuvæðing Reykholtsskóla er gott dæmi um hvernig nýting stafrænnar tækni í kennslu getur stuðlað að fjölbreyttum kennsluháttum og námsleiðum. Með áframhaldandi þróun og stefnumótun er hægt að tryggja að þessi jákvæða þróun haldi áfram og að nemendur verði vel undirbúnir fyrir framtíðina.
Ásta Kristjana Guðjónsdóttir

Spjaldtölvur hafa auðveldað einstaklingsmiðað nám og gert kennurum kleift að nýta fjölbreyttari kennsluaðferðir, skrifar Ásta Kristjana.