Sólstafir og Aðalþing samþykkja kjarasamning

Atkvæðagreiðslu í tveimur leikskólum um nýjan kjarasamning lauk klukkan 16 í dag. Niðurstaðan var afgerandi og var kjarasamningur FL samþykktur í báðum leikskólum.
Félagsmenn Félags leikskólakennara (FL) sem starfa í leikskólanum Aðalþingi annars vegar og Waldorfleikskólanum Sólstöfum hins vegar hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning.
Í tilfelli Waldorfleikskólans Sólstafa var skrifað undir nýjan kjarasamning við FL 24. júlí síðastliðinn. Atkvæðagreiðsla stóð yfir dagana 22. ágúst til 24. ágúst.
Kjarasamningur Kennarafélagsins, sem rekur Aðalþing í Kópavogi, og FL var undirritaður 3. júní síðastliðinn. Atkvæðagreiðsla stóð yfir dagana 22. til 24. ágúst.
Niðurstaða í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna FL hjá Kennarafélaginu / Aðalþingi
- Á kjörskrá voru 16
- Atkvæði greiddu 8 eða 50%
- Já sögðu 7 eða 87,50%
- Nei sagði 1 eða 12,50%
- Auðir voru 0
Niðurstaða í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna FL Waldorfleikskólanum Sólstöfum
- Á kjörskrá voru 12
- Atkvæði greiddu 6 eða 50%
- Já sögðu 4 eða 66,67,50%
- Nei sagði 0 eða 0%
- Auðir voru 2 eða 33,33%
Kjarasamningurinn tryggir félagsmönnum FL hjá Waldorfleikskólanum Sólstöfum og í Aðalþingi sama samning og gerður var við sveitarfélögin. Það á við um allar launahækkanir, fylgiskjöl, samkomulag um afhendingu gagna og samstafsnefndarbókanir. Bæði þær samstarfsnefndarbókanir sem búið er að afgreiða sem og þær samtarfsnefndarbókanir sem mögulega verða gerðar á samningstímanum.