Snúum bökum saman, þéttum raðirnar
Á síðasta ári endurnýjuðu öll aðildarfélög Kennarasambandsins kjarasamninga sína. Það er vart ofsögum sagt að samningaviðræðurnar hafi gengið brösuglega. Sú staðreynd að fimm af sjö aðildarfélögum KÍ neyddust til að hóta eða beita verkfallsvopninu, sýnir það. Til upprifjunar þá voru félagsmenn Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum í verkfalli drjúgan hluta marsmánaðar 2014. Í þeirri deilu náðust samningar í byrjun apríl. Félag grunnskólakennara fór í eins dags verkfall síðasta vor, en samningar náðust áður en verkfallið varð umfangsmeira. Félag leikskólakennara náði að semja þremur dögum fyrir boðað verkfall. Þá var komið að Félagi tónlistarskólakennara (sem í dag heitir Félag kennara- og stjórnenda í tónlistarskólum), en félagsmenn þess neyddust til að leggja niður störf frá því síðla október til loka nóvember. Sú kjaradeila var þung, en samningar tókust að lokum.
Í öllum þessum átökum þá stóðum við félagsmenn KÍ þétt saman. Við mættum á samstöðufundi og hvöttum hvert annað til dáða. Nú skiptir máli að halda samstöðunni við. Menn geta verið ósammála um einstakar leiðir, en almennt stefna allir, forsvarsmenn félaga, starfsmenn KÍ og auðvitað félagsmenn allir að sama markmiði, sem er að bæta kjörin í skólum landsins.
Þórður Árni Hjaltested, formaður KÍ
Vinnumat í grunn- og framhaldsskólum
Í samningum FG og FF/FS var samið til rúmlega tveggja ára með uppsagnarákvæði sem tengt var kosningum um vinnumat meðal félagsmanna. Í því fólst að samningsaðilar ætluðu að vinna við að útfæra ný vinnutímaákvæði (vinnumat), kynna þau og að endingu leggja þau í dóm félagsmanna. Ég ætla ekki að rifja hér upp umræðurnar sem áttu sér í vinnumatsferlinu, enda brýnna að horfa fram á veginn en í baksýnisspegilinn. Það sem nú skiptir máli er að á bæði grunn- og framhaldsskólastiginu (að Tækniskólanum undanskildum) hefur nýtt vinnumat verið samþykkt. Samningarnir sem það byggir á munu tryggja kennurum í grunnskólum og framhaldsskólum verulegar og bráðnauðsynlegar launahækkanir. Á næstu mánuðum þarf að ná fram frekari lagfæringum á kjörum félagsmanna, en kjarasamningar Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélags Íslands eru nú lausir auk þess sem kjarasamningur Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum losnar í haust. Þetta er raunar verkefni sem aldrei lýkur.
Þjóðarsátt um kennaralaun
Síðustu misseri hefur talsvert verið rætt um mikilvægi þess að breyta vinnulagi við endurnýjun kjarasamninga. Tryggja þarf að samningaferlið fari fyrr af stað en nú er til að koma í veg fyrir að langur tími líði frá því að kjarasamningar renni út þar til þeir eru endurnýjaðir, með tilheyrandi seinkun á kjarabótum sem í viðkomandi samningum felast. Enn mikilvægara er þó að koma í veg fyrir að kjaraviðræðum sé aftur og aftur stefnt í feril átaka og verkfalla, eins og við kennarar þekkjum allt of vel. Í þessu efni hefur verið horft til hinna Norðurlandanna, þar sem víðast hvar hefur náðst samkomulag um launastrúktúr, þ.e. hversu mikil launabilið á að vera milli hinna mismunandi hópa á vinnumarkaði. Þar snúast kjaraviðræður ekki um hversu stóran hluta kökunnar hver einasti hópur á að fá eins og hér á landi, heldur er þar farið yfir hversu mikið er til skiptanna í samfélaginu og því dreift jafnt á alla hópa.
Ég tel að stefna eigi að slíku fyrirkomulagi hér, en því miður er langt í land að það náist. Ef aðeins er horft til félagsmanna KÍ þá er það vissulega svo að með nýjustu samningum okkar erum við farin að nálgast meðallaun annarra háskólamenntaðra starfsmanna ríkis og sveitarfélaga. Þar vantar þó enn aðeins upp á. En það er ekki þangað sem við eigum að horfa. Enn er langt í land með að kennari sé jafnt metinn til launa og háskólamenntaður sérfræðingur á almenna markaðnum. Þetta þarf að laga og um það tel ég að sé víðtæk sátt í samfélaginu þrátt fyrir tal einstakra ráðamanna um annað. Það felst því mikið ranglæti í því að fullyrða að launahækkanir kennara séu að raska einhverju jafnvægi í samfélaginu. Ég spyr því, þarf þjóðarsátt um launahækkun kennara frekar en annarra? Og svarið er einfalt – já. Stjórnvöld þurfa að koma að málinu og félagsmenn KÍ þurfa skilning annarra launamanna í landinu til þess að sátt skapist um ásættanlega launasetningu kennara í samfélaginu. Mikilvægt er að við stöndum þétt saman í baráttunni framundan.
Sameinuð, og aðeins sameinuð, náum við árangri.
Með félagskveðju
Þórður Á. Hjaltested, formaður KÍ.
Greinin birtist í Skólavörðunni, tímariti Kennarasambandsins. Lestu tímaritið í heild: