Smásagnasamkeppnin fimmta haustið í röð

Fréttir|14. ágúst 2019

Þá er hin árlega Smásagnasamkeppni KÍ komin í gang. Hvetjum nemendur á öllum skólastigum til þátttöku.

Tilefni smásagnasamkeppninnar er Alþjóðadagur kennara, eða kennaradagurinn, sem haldinn er hátíðlegur hérlendis og um veröld alla 5. október.

Þátttaka í keppninni hefur frá upphafi verið góð í flestum aldursflokkum og ljóst að börn og ungmenni búa yfir áhuga á skáldskap. Við hvetjum kennara á öllum skólastigum til að láta nemendur vita af keppninni og jafnvel má nýta hana í skólastarfinu.

Keppt er í fimm flokkum:

  • leikskólinn
  • grunnskólinn 1. – 4. bekkur
  • grunnskólinn 5. – 7. bekkur
  • grunnskólinn 8. – 10. bekkur
  • framhaldsskólinn


Þema keppninnar er sem fyrr tengt skólanum en smásagnahöfundar hafa að sjálfsögðu frelsi í efnistökum. Gætt verður fyllstu nafnleyndar á meðan dómnefnd fer yfir sögurnar. Verðlaunasögurnar verða birtar í prentútgáfu Skólavörðunnar sem kemur út í byrjun vetrar. Verðlaunaathöfn og sjálf verðlaunin verða kynnt síðar.

Skilafrestur er til miðnættis 20. september og ber að skila handritum á netfangið smasaga@ki.is.

 

Eftirfarandi þarf að hafa í huga:

  • Sagan má ekki hafa birst opinberlega og ekki vera lengri en 3.000 orð.
  • Skila á sögum sem viðhengi í textaformati, til dæmis word-útgáfu (ekki pdf).
  • Sagan á að vera á íslensku
  • Sagan þarf að bera titil


Upplýsingar um höfund:

  • Nafn
  • Bekkur
  • Skóli
  • Tengiliður
  • Heimilisfang og sími
  • Athugið: Ef kennarar senda margar sögur fyrir hönd nemenda sinna þá er æskilegt að senda hverja sögu í sér tölvupósti.


Fréttir af keppninni frá fyrri árum:

Framúrskarandi smásagnahöfundar verðlaunaðir (5. október 2018)

Smásagnahöfundar verðlaunaðir á Alþjóðadegi kennara (5. október 2017)

KÍ verðlaunar smásagnahöfunda á Alþjóðadegi kennara (5. október 2016)

Úrslit í smásagnasamkeppninni gerð kunn (5. október 2015)

 

Verðlaunahafar frá upphafi

2018

Jón Halldór Stefánsson, leikskólanum Álfaborg á Svalbarðsströnd, fyrir söguna Vélmennin
Katla Bríet Líndal Benediktsdóttir, 2. bekk Grunnskóla Þórshafnar, fyrir söguna Vandræðalegi skóladagurinn
Margrét Þrastardóttir, 7. bekk Vatnsendaskóla, yrir söguna Dúfurnar
Rakel Björk Heimisdóttir, 8. bekk Víðistaðaskóla, fyrir söguna Tveir skrýtnir skóladagar
Guðrún Elena Magnúsdóttir, Menntaskólanum við Hamahlíð, fyrir söguna Skólinn hefur drepið mig. Ég hef verið myrt af minni eigin menntun

2017

Börn í leikskólanum Skýjaborg (árgangur 2012) í Hvalfjarðarsveit fyrir söguna Kennarinn með blað í fanginu
Kjartan Kurt Gunnarsson, 1. bekk Grunnskóla Þórshafnar, fyrir söguna Ofurkennari minn
Heiðrún Vala Hilmarsdóttir, 5. bekk Hraunvallaskóla, fyrir söguna Barnalegi kennarinn
Elísa Sverrisdóttir, 10. bekk Foldaskóla, fyrir söguna Hringrás
Dagný Ásgeirsdóttir, nemi í Menntaskólanum Tröllaskaga, fyrir söguna Kennarinn

2016

Börnin í Hulduheimum í leikskólanum Fífuborg í Grafarvogi fyrir söguna Mannasaga
Guðlaugur Heiðar Davíðsson, nemandi í 4. bekk Hamraskóla í Reykjavík, fyrir söguna Kennarabófi
Eyþór Ingi Brynjarsson, nemandi í 6.–EÓS í Holtaskóla í Reykjanesbæ fyrir söguna Nýi kennarinn í Litlahól
Guðný Salvör Hannesdóttir, nemandi í 8. bekk Laugalandsskóla í Holtum, fyrir söguna Áhugaverður álfakennari
Bryndís Bolladóttir, nemandi í Borgarholtsskóla, fyrir söguna Hún kenndi mér allt sem ég kann – sigursaga þyrnidansara í þunglyndi

2015

Kjartan Kurt Gunnarsson, nemandi í leikskólanum Barnabóli á Þórshöfn, fyrir söguna Kennari minn
Ásdís Einarsdóttir, nemandi í Öxarfjarðarskóla, fyrir söguna Kennaradraugarnir
Marta Ellertsdóttir, nemandi í Garðaskóla, fyrir söguna Emelía og kennarinn
Dagný Gréta Hermannsdóttir, nemandi í Menntaskólanum í Kópavogi, fyrir söguna Bananabrauð