Smásagnasamkeppni í tilefni Alþjóðadags kennara

Fréttir|17. ágúst 2015

Kennarasamband Íslands í samstarfi við Heimili og skóla efnir til smásagnasamkeppni meðal nemenda í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum. Tilefni smásagnasamkeppninnar er Alþjóðadagur kennara sem haldinn er hátíðlegur 5. október um allan heim. 

Þema smásagnasamkeppninnar er Kennarinn og eru efnistök frjáls. Smásagan má þó ekki hafa birst opinberlega og ekki vera lengri en 3.000 orð. Þriggja manna dómnefnd verður skipuð á næstunni; hana skipa fulltrúi KÍ, fulltrúi foreldra og rithöfundur. 

Keppendum verður skipt í fjóra flokka: 

  • Leikskólinn
  • Grunnskólinn I (nemendur í 1. til 7. bekk)
  • Grunnskólinn II (nemendur í 8. til 10. bekk)
  • Framhaldsskólinn

Vegleg verðlaun verða veitt fyrir bestu söguna í hverjum flokki og fer verðlaunaafhendingin fram á Alþjóðadegi kennara, 5. október næstkomandi. Verðlaunasögurnar verða birtar í miðlum Kennarasambandsins. 

Skilafrestur á smásögum er 25. september 2015 og ber að skila handritum rafrænt á netfangið smasaga@ki.is. Nafnleyndar verður gætt gagnvart dómnefnd. 

Fylgist með á Facebook. 

Uppfært 17.9.2015: Skilafrestur framlengdur til 25. september.