Smáforrit sem bætir þjónustu við börn með sérþarfir

Fréttir|2. janúar 2024

Elísabet Ásta Ólafsdóttir vinnur að hugbúnaðarlausn sem ætlað er að bæta þjónustu við grunnskólabörn með sérþarfir. Hún segir Svövu Jónsdóttur frá í nýrri Skólavörðu.

„Ég hlaut styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna til að vinna að verkefninu síðastliðið sumar sem gerði mér kleift að leggjast í rannsóknar- og undirbúningsvinnu. Leggja þarf mikla vinnu í að huga að uppsetningu kerfisins í heild, öllum öryggisráðstöfunum og aðgangsstýringum. En til að smáforritið sé nothæft verður að byggja það upp út frá þörfum notenda,“ segir Elísabet Ásta Ólafsdóttir.

Jákvæð nálgun kennara mikilvæg

Elísabet Ásta er 22 ára Akureyringur. Hún er stúdent af náttúrufræðibraut Menntaskólans á Akureyri og lauk í vor grunnnámi í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

„Námið í menntaskólanum undirbjó mig svo sannarlega fyrir háskólanám. Ég verð ætíð þakklát fyrir þá kennslu sem ég fékk í MA og vil ítreka hversu mikilvæg jákvæð nálgun kennara er fyrir upplifun nemenda.“

„Í MA var í boði einn forritunaráfangi en fyrir þá sem ekki þekkja til þá snýst hugbúnaðarverkfræði að miklu leyti um forritun. Í þessum áfanga voru okkur kennd grunnatriði forritunar og síðan bjuggum við til afar einfaldan tölvuleik sem gekk út á að skjóta úr geimskipi á geimverur.“

„Það var ótrúlega magnað að geta stjórnað því sem varð til í tölvuleiknum, breyta því hvernig verurnar litu út og sjá torskildar skipanir verða að sjáanlegum hlutum sem hægt var að stjórna með lyklaborðinu. Þetta var svo mikil upplifun að þarna ákvað ég að fara í hugbúnaðarverkfræði.“


Viðbrigði að fara í háskólann

„Hugbúnaðarverkfræðin er, eins og flestar verkfræðigreinar, afar fjölbreytt. Fyrsta árið er frekar samræmt innan verkfræðinámsbrautanna en þá lærir maður stærðfræði, eðlisfræði og grunnatriði forritunar og eftir það sérhæfast námsbrautirnar. Það voru mikil viðbrigði að fara úr bekkjarkerfi menntaskólans yfir í áfangakerfi háskólans og mæta í tíma með 200 öðrum en það vandist fljótt.“

„Mér þótti gott að dæmatímar voru til dæmis skiptir upp eftir námsleiðum því þannig kynntist maður samnemendum sínum. Það er nefnilega svo mikilvægt að hafa einhvern að leita til með verkefnavinnslu.“

„Strax í upphafi náms var hamrað á því að góð ástundun, eftirfylgni námsáætlunar og áhugi á náminu væri lykillinn að velgengni. Stór hluti námsins fer fram utan hefðbundinna kennslustunda og þá er eins gott að vera skipulagður; annars er voðinn vís. Aðgengi að kennurum var gott og iðulega gáfu þeir sér góðan tíma til að aðstoða ef þörf var á.“

Bókin getur týnst

Á þriðja og seinasta árinu í HÍ tók Elísabet Ásta námskeiðið Frá hugmynd að veruleika og síðan samnefnt framhaldsnámskeið sem Jóhann Pétur Malmquist prófessor stóð fyrir.

„Námskeiðið gekk fyrst og fremst út á nákvæmlega það sem heitið gefur til kynna; að láta hugmynd verða að veruleika. Við nemendur fengum að skyggnast inn í raunverulegar aðstæður í atvinnulífinu og lærðum meðal annars af algengum mistökum sem eiga sér oft stað við upphaf þróunar og útfærslu verkefna.“



„Þá var okkur falið það hlutverk að gerast frumkvöðlar og hefja þróunarvinnu á hugmynd. Ég hafði áður heyrt af vandamáli sem mig langaði að leysa og hér var komið frábært tækifæri til að tækla það. Vandamálið tengist þjónustu sem börnum er veitt í skólum landsins.“

„Eins og við vitum eru börn jafn mismunandi og þau eru mörg. Sum eru með sértækar þarfir og geta átt erfitt með að tjá sig, stjórna skapinu eða athafna sig. Fyrir foreldra þessara barna er afar dýrmætt að umsjónaraðilar skrái upplýsingar um atvik dagsins því hugsanlega á barnið sjálft í erfiðleikum með að segja ítarlega frá.“

„Fyrirkomulagið nú er almennt þannig að atvik eru skráð í stílabók sem fylgir barninu yfir daginn. Oftar en ekki eru þetta jákvæðar upplýsingar en á milli geta verið erfiðir dagar. Eftir slíka daga geta skráningar varðað neikvæð atvik og mikilvægt er að upplýsingar berist ekki út fyrir innsta hring.“

„Stílabókin getur hins vegar ekki tryggt að upplýsingar séu ætíð í öruggum höndum. Bókin getur orðið fyrir hnjaski, hún týnst eða skemmst vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna og getur til dæmis hæglega orðið eftir á vergangi. Þá getur hver sá sem kann að lesa grúskað í afar persónulegum upplýsingum.“

„Þegar mér varð ljóst að málin gætu undið svona upp á sig stóð mér ekki á sama. Með stílabókinni eru boðleiðir upplýsinga langar og berast jafnvel seint og illa. Þegar komið er heim í lok dags þarf til að mynda fyrst að finna stílabókina og fletta í gegnum hana áður en ljóst er hvernig gekk.“


„Það sem er sérstakt við þetta er að börnin þurfa oft sjálf að sjá um að bókin sé til staðar; gæta þess að hún fylgi alltaf með. Það er óskemmtilegt og tekur af barninu þá upplifun að fá að vera bara barn. Svoleiðis bras er fyrir fullorðna að sinna. Þá eru góð ráð dýr, hvernig má leysa þetta vandamál?“

Annað sætið í viðskiptahraðli

Elísabet Ásta segir að í áfanganum Frá hugmynd að veruleika hafi ekki verið nein vandamál, aðeins lausnir. „Ég varð að skilgreina vel hvert vandamálið væri, hverjum það tengdist, hvar það birtist og í hvaða formi. Það lá beinast við, þar sem ég var nú einu sinni í hugbúnaðarverkfræði, að nýta þá þekkingu og reynslu við úrlausn.

„Á seinustu önninni minni í HÍ hafði ég svigrúm í stundatöflunni minni sem ég nýtti vel hvað varðar úrvinnslu vandamálsins. Ég tók þátt í frumkvöðlahraðlinum AWE (Academy for Women Entrepreneurs) sem HÍ og sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi standa fyrir.“

„Markmið hraðalsins er að styðja við konur sem eru að taka sín fyrstu skref í frumkvöðla- og nýsköpunarheiminum. Þar fer maður í gegnum alþjóðlegt netnámskeið þar sem meðal annars eru kennd vinnubrögð við upphaf hugmyndasmíðar. Það að fá hugmynd er eitt en að koma henni á næsta stig krefst mikillar vinnu og þrautseigju.“

Til að smáforrit sé nothæft verður að byggja það upp út frá þörfum notenda

„Í hraðlinum öðlaðist ég mikla og dýrmæta reynslu en ekki síst kynntist ég konum sem eru á svipuðum stað og ég í frumkvöðlastarfsemi. Mér þykir mikilvægt að hafa tengslanet sem ég upplifi að standi með manni og gefi hreinskilna endurgjöf, biðji maður um hana.“

„Aðalmarkmið AWE hraðalsins var að setja saman viðskiptaáætlun og  kynna hana að lokum fyrir dómnefnd. Viðskiptaáætlunin var krefjandi verkefni. Hún virtist í fyrstu heldur ógerleg en með reglulegum vinnustundum og ástundun var hún allt í einu klár. Netnámskeiðið sem er kennt í AWE fer nefnilega ítarlega yfir öll atriði, stór og smá, sem snerta þarf á í góðri viðskiptaáætlun. En vissulega var það ekki gert á einum degi.“ 

„Þá lærði ég einnig hvernig maður ber sig að með alls konar hagnýt atriði eins og hluthafasamkomulag í samstarfi, hvernig maður sækir um styrki úr sjóðum og hvernig er best að koma hugmyndinni sinni á framfæri.“  

„Undir lok námskeiðsins var haldin uppskeruhátíð og verðlaun veitt fyrir verkefni sem talin voru best. Það varð svo niðurstaðan að ég hafnaði í öðru sæti og ég er afar stolt af þeirri viðurkenningu sem því fylgir.“


Þróun smáforritsins heldur áfram

Elísabet Ásta segir að til að hún gæti tekið lausnina á næsta stig hafi hún orðið að gefa sér frekara svigrúm til vinnu. „Það er að mörgu að huga við þróun smáforrits og afar mikilvægur þáttur er greining á markaði. Nauðsynlegt er að fyrir liggi hvað notendur þurfa og vilja og þær ástæður sem þar liggja að baki.“ 

„Þróun smáforrits, sem hægt er að bjóða á samkeppnishæfum markaði, er umfangsmikil og leggja verður gríðarlega vinnu í uppbyggingu og rannsóknir. Ég hlaut styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna til að vinna að verkefninu síðastliðið sumar sem gerði mér kleift að leggjast í rannsóknar- og undirbúningsvinnu.“ 

„Í samvinnu við sveitarfélagið Akureyrarbæ fékk ég tækifæri til að átta mig almennilega á því umhverfi sem er í kringum þjónustu við börn með sérþarfir og átti mikilvæg samtöl við tilvonandi notendur forritsins. Þá sótti ég einnig fundi í tengslum við gerð landsáætlunar í málefnum fatlaðs fólks sem voru haldnir nú í sumar.“ 

„Mér þykir mikilvægt að vera upplýst um aðstæður nútímans og heyra frá fyrstu hendi hvað má betur fara. Milliliðalaus samtöl eru mikilvæg, sérstaklega þegar gera á atlögu að umbótum. Þó styrktímabilinu sé lokið held ég áfram þróun smáforritsins samhliða öðrum verkefnum. Ég er þakklát fyrir þá reynslu og þekkingu sem ég hef öðlast hingað til og bíð spennt eftir komandi tímum.“ 

Svava Jónsdóttir ræddi við Elísabetu Ástu Ólafsdóttur fyrir nýjasta tölublað Skólavörðunnar.