Slakað á reglum um sóttkví

Fréttir|25. janúar 2022

Börn og unglingar eru algjörlega undanþegin reglum um smitgát en fara í sóttkví einungis ef um smit á heimili er að ræða.

Verulegar breytingar verða á sóttkví en reglugerð þess efnis var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Börn og unglingar eru algjörlega undanþegin reglum um smitgát en fara í sóttkví einungis ef um smit á heimili er að ræða. Þessi breyting hefur áhrif á smitrakningu sem skólafólk hefur að mestu séð um, en nú verður hún frá.

Í frétt á vef Stjórnarráðsins segir: „Þá kemur fram í minnisblaði sóttvarnalæknis að núverandi reglur um sóttkví og einangrun hafi valdið miklum fjarvistum í skólum og á vinnumarkaði með tilheyrandi truflunum. Mörg börn hafi endurtekið þurft að vera í sóttkví og hafi sérfræðingar í velferð barna bent á að slíkt geti haft neikvæðar afleiðingar. Því sé lagt til að börn á leik- og grunnskólaaldri þurfi ekki að fara í smitgát eða sóttkví nema þau hafi dvalið eða dvelja með einstaklingi í einangrun.“

Reglur um sóttkví og smitgát verða eftirfarandi og gilda frá miðnætti:

  • Sóttkví verður fyrir þá sem eru útsettir á heimili.
    • Skilyrði sóttkvíar verða óbreytt, þ.e. aðskilnaður frá öðrum í fimm daga og PCR-próf til að losna.
    • Ef ekki er viðhafður fullur aðskilnaður frá smituðum á heimili lýkur sóttkví með PCR-prófi degi eftir að sá smitaði útskrifast, eins og verið hefur.
    • Þríbólusettir (smit telur sem ein bólusetning) á heimili fara þó í smitgát í stað sóttkvíar, sbr. að neðan, sem lýkur með PCR-prófi á fimmta degi.

 

  • Smitgát verður fyrir þá sem eru útsettir utan heimilis.
    • Í smitgát skal viðkomandi bera grímu í margmenni og þegar ekki verður hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti sem inni. Forðast skal mannmarga staði og sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga.
    • Smitgát þarf að viðhafa í fimm daga og ekki þarf sýnatöku til að losna, sbr. þó þríbólusetta sem eru útsettir á heimili.
    • Börn á leik- og grunnskólaaldri eru undanþegin smitgát í þessum tilfellum en þurfa að vera í sóttkví ef smit er á heimili.

 

Frétt á vef Stjórnarráðsins

Minnisblað sóttvarnalæknis um breytingu á sóttkví, einangrun og sýnatökum vegna COVID-19