Skýrsla um stjórnarfund NLS komin á netið

Fjallað er um efni stjórnarfundar NLS og þematengd viðfangsefni.
Skýrsla KÍ um stjórnarfund Norrænu kennarasamtakanna (NLS), sem fram fór í Reykjavík 29. nóvember síðastliðinn, er kominn á vefinn.
Í skýrslunni er fjallað um efni stjórnarfundarins en þar var auk hefbundinna liða fjallað um þematengd viðfangsefni. Jón Torfi Jónasson, prófessor á Menntavísindasviði HÍ, flutti fyrirlestur undir yfirskriftinni Skóli framtíðarinnar og kennarar og Sigurjón Mýrdal, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, flutti fyrirlestur sem hann kallaði Kennarar í miðju skólaþróunar.
Þá var fjallað um menntapólitísk mál sem efst eru á baugi á Norðurlöndunum, svo sem breytingar sem Finnar eru að gera á vinnutíma kennara, baráttu fyrir hærri launum í Svíþjóð og hugmyndir í Danmörku um að hvernig megi stuðla að því að efla velferð og menntun nemenda og starfsgleði kennara.
KÍ fór með formennsku í NLS á liðnu ári en sænsku kennarasamtökin, Lärarförbundet, hafa nú tekið við keflinu. Fulltrúar KÍ í stjórn NLS eru Þórður Hjaltested, formaður KÍ, Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ, og Haraldur Gíslason, formaður FL.
Fundargerðin er fróðleg og henni fylgir ítarefni af ýmsu tagi.