Skrítnir kýrhausar og skólastjórar
Spakmæli segja ýmislegt um skapgerð þjóða. Það segir til dæmis sitthvað um íslensku þjóðina að hún hafi talið að bókvitið yrði ekki í askana látið eða að kýrhausar væru skrítnir að innan. Það er enda rétt að öldum saman snerist tilveran hér á landi (og þar með menntunin) um að lifa af. Lifa af harðindi og helst lifa af dauðann. Lestrarkennsla þjónaði lengi þeim eina lúterska tilgangi að bjarga sálum landsmanna. Við skárum okkur úr að því leyti að býsna lengi var nokkur hluti þjóðarinnar læs á meðan örfáir kunnu að skrifa. Hvað ætti fólk svo sem að geta skrifað sem ekki virkaði sem hjóm við hlið hinna heilögu orða?
Jú, fólk hefði kannski getað skráð veðurfarslýsingar eða gert einfalda útreikninga. Það hefði getað skrifað skilaboð til afkomenda sinna eða fjarlægra samlanda. Hugsanlega hefðu einhverjir komist upp á lag með að skrifast á við útlendinga.
Það hefði sparað íslensku þjóðinni verulegar þrenginga og erfiðleika ef áhrifa af upplýsingunni hefði gætt hér fyrr. Það er engin móðgun við þjóðararf okkar okkar og sögu að halda því fram að slíkt hafi fyrst orðið verulega sýnilegt þegar fólk fór að setja upp erlend gleraugu.
Íslenska menntakerfið er enn í nokkrum þrengingum. Hrunið hafði lúmsk en veruleg áhrif. Áhrifanna gætir jafnvel enn sterkar vegna þess að ofan í hrun bættust ýmsar aðrar áskoranir. Það er auðvitað ekki sjálfgefið að viðbrögð við áföllum eða erfiðleikum séu útpæld og hugsuð. Það er í raun ekki hægt að ætlast til þess. Við hljótum þó að gera þá kröfu á okkur sjálf að nýta andrýmið, þegar það gefst loks, til að skoða farinn veg og gera nauðsynlegar umbætur.
Skólastjórar í grunnskólum hafa um nokkra hríð reynt að benda á þá alvarlegu stöðu sem nú er uppi í þeirra hópi. Það er brostinn á flótti úr stéttinni. Ýmislegt spilar þar inn í. Það hefur verið mjög erfitt að vera skólastjóri frá hruni. Það kom í þeirra hlut að draga saman seglin og það kom í þeirra hlut að bera hitann og þungann af því að reyna að bæta fyrir skaðann í kjölfarið. Miklum tíma skólastjóra var eytt í vitleysu í misheppnuðum tilraunum til að breyta starfsumhverfi grunnskólanna með kjarasamningum. Þetta, ásamt öðru, hefur leitt til þess að of margir skólastjórar hafa ekki fengið að vera fyrst og fremst þeir faglegu leiðtogar sem þeim er ætlað að vera og þeir vilja vera.
Ofan í nýliðunarvanda í kennarastétt er nú brostinn á flótti í skólastjórastétt. Þeir fara til annarra starfa. Sumir fara auðvitað að kenna. Aðrir gera eitthvað allt annað. Þeir sem taka að sér sambærileg störf á öðrum vettvangi njóta mun hærri launa og er því að öllum líkindum ekkert á leiðinni til baka inn í skólana.
Erlendis er víðast hvar unnið mjög markvisst að því að halda í góða skólastjóra því það er í skjóli af þeim sem afburðakennarar þrífast best. Góður skólastjóri er faglegur leiðtogi. Góðir skólastjórar eru margvíslegir og misjafnir en flestir þekkja þeir heim kennarans út og inn. Það skiptir nefnilega verulegu máli. Bestu stjórnendurnir koma úr hópum góðra kennara. Þeir vita hvað þarf til.
Skólastjórar í grunnskólum hafa nú um hríð barist fyrir því að menntun þeirra sé metin til launa með sama hætti og gert er hjá kennurum. Það hefur ekki hlotið hljómgrunn hjá viðsemjendum þeirra af einhverjum ástæðum. Séu einhver fagleg rök þar að baki væri forvitnilegt að heyra þau. Ég kem allavega ekki auga á þau. Þvert á móti hef ég af því verulegar áhyggjur ef ekki eru nýtt öll þau tækifæri sem gefast til að gera reynslumikla kennara að leiðtogum í skólum. Eitt slíkt tækifæri er einmitt að meta menntun og reynslu kennara til launa verði þeir að skólastjórum.
Það er ekki tilviljun að aðrar þjóðir reyna að gera reynslumikla kennara að skólastjórum. Það getur sparað okkur mikla óþarfa erfiðleika að átta okkur á því.