Skrifstofu lokað eftir hádegi vegna veðurs

Fréttir|5. febrúar 2025

Skrifstofu KÍ verður lokað eftir hádegi í dag, miðvikudaginn 5. febrúar, vegna veðurs. Síma- og fyrirspurnarvakt verður óbreytt út daginn.

Vegna veðurviðvörunar á höfuðborgarsvæðinu verður skrifstofu Kennarasambandsins í Borgartúni 30 lokað eftir hádegi í dag, miðvikudaginn 5. febrúar. Símavakt verður óbreytt til klukkan 15:00 og fyrirspurnavakt til klukkan 16:00.