Skrifstofu KÍ lokað vegna viðgerða

Fréttir|5. júlí 2023

Skrifstofu Kennarasambands Íslands í Borgartúni 30 verður lokað fram að sumarlokun, 17. júlí, vegna viðgerða. Starfsemi sambandsins fer þó áfram fram með hefðbundnum hætti á meðan á viðgerðum stendur.

Skrifstofan opnar á nýjan leik þriðjudaginn 8. ágúst.

Á meðan á viðgerðum stendur er hægt að hafa samband í síma 595 1111 á milli klukkan 10 og 15 alla virka daga. Einnig er hægt að senda tölvupóst á ki@ki.is eða senda inn fyrirspurnir eða ábendingar hér á vefnum, með því að ýta á umslagið neðst til hægri. 

Sumarlokun skrifstofu

Sumarlokun skrifstofu KÍ hefst svo mánudaginn 17. júlí og varir í þrjár vikur, eða til 7. ágúst.

Hægt verður að hafa samband við Orlofssjóð á meðan á sumarlokun stendur. Símatími verður alla virka daga frá klukkan 9:00 til 12:00, í síma 595 1192 og tölvupóstum sem berast á orlof@ki.is verður svarað innan eins dags. Best er fyrir gesti orlofshúsa að byrja alltaf á því að hafa samband við skráða umsjónarmenn.