Skrifstofa KÍ verður lokuð milli jóla og nýárs
Fréttir|22. desember 2023

Hægt verður að hafa samband við Orlofssjóð í gegnum tölvupóst yfir hátíðarnar.
Skrifstofa Kennarasambands Íslands verður lokuð á milli jóla og nýárs. Skrifstofan verður opnuð klukkan tíu að morgni þriðjudagsins 2. janúar 2024.
Félagsmenn, sem dvelja í sumarhúsum og íbúðum Orlofssjóðs um hátíðarnar, eru beðnir að hafa samband við umsjónarmenn á hverjum stað ef eitthvað kemur upp á. Upplýsingar um umsjónarmenn er að finna í leigusamning.
Þurfi félagsmaður nauðsynlega að ná í starfsfólk Orlofssjóðs KÍ eða koma skilaboðum til sjóðsins getur viðkomandi sent tölvupóst á netfangið orlof@ki.is. Starfsfólk sjóðsins les tölvupósta á milli klukkan 11 og 12 dagana 26.- 29. desember.
Allar upplýsingar um reglur sjóðsins má finna hér.
Gleðilega hátíð!
