Skrifstofa KÍ verður lokuð 9. apríl

Fréttir|8. apríl 2024

Kennarasamband Íslands verður lokað þriðjudaginn 9. apríl.

Ráðstefnan Skóli nútíðar – vegvísir framtíðar fer fram í Hörpu þriðjudaginn 9. apríl. Það er Kennarasamband Íslands sem stendur að ráðstefnunni en þar verður fjallað um niðurstöður nýlegrar viðhorfs- og þjónustukönnunar sem gerð var meðal félagsmanna KÍ. 

Af þessum sökum verður skrifstofan lokuð en starfsfólk KÍ verður að störfum á ráðstefnunni. 

Lesa um ráðstefnuna