Skrifstofa KÍ opnuð á nýjan leik

Fréttir|4. maí 2020

Starfsfólk Kennarasambands Íslands sneri aftur til starfa í Borgartún í morgun.

Skrifstofu KÍ var lokað á hádegi mánudaginn 23. mars. Var það gert til þess að tryggja starfsemi sambandsins á COVID-tímum.

Starfsfólk hefur síðustu vikur unnið heimavið og veitt félagsmönnum alla hefðbundna þjónustu. Starfsfólk hefur haft samskipti sín í milli í gegnum fjarfundabúnað og vel hefur gengið að innleiða ný vinnubrögð. Þá hefur stjórn KÍ fundað á hverjum morgni síðan samkomubann tók gildi. Á þessum fundum hefur staða félagsmanna og skólastarfs í tengslum við COVID-19 verið til umræðu.

Þrátt fyrir að búið sé að opna skrifstofu KÍ er þeim tilmælum beint til félagsmanna að nýta sér þann kost að senda erindi í gegnum ábendingakerfið á vefsíðu KÍ og eða senda tölvupóst.

Yfirvöld hafa gefið út að hámarksfjöldi í rými megi mest vera fimmtíu frá og með deginum í dag. Þá gildir áfram að tveir metrar skulu vera á milli fólks. Þessar reglur gilda til 1. júní og verður þeim, sem öðrum tilmælum sóttvarnalæknis, fylgt í hvívetna á skrifstofu KÍ.